Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1968, Síða 127
— 126 —
1968
hann í sig með mikilli áfergju allt, sem hann fékk. Hann settist sjálfur
upp, notaði báðar hendur, þegar hann var að borða, og virtist ekki
kveinka sér í handleggjum. Barnið var ákaflega sóðalegt, fötin óhrein,
og leggur af því mikinn ódaun. Andlitið er mjög þrútið og marið, hægra
auga alveg sokkið, en rifar í hitt. Húðin í andliti er alsett smá sárum.
Undir nefinu er allstórt sár. Ekki er gott að átta sig á, hvað valdið
hefur þessum sárum, en vafalítið er það vegna einhvers konar áverka.
Varir eru þykkar og bólgnar, og innan á neðri vör er stórt fleiður.
Drengurinn á erfitt með að opna munninn, svo ekki er hægt að sjá upp
í munninn. Á eyrum eru svipaðir áverkar og í andliti. Ofan á hvirfli
eru tveir allstórir blettir, þar sem hárið er mjög þunnt, og virðist sem
það hafi verið reytt af. Aftan á hálsi er far eftir band. Liggur það
fram yfir axlir og niður í handarkrika báðum megin, og virðist sem
drengurinn hafi á þann hátt verið hengdur upp. Um allan kroppinn
sjást stærri og minni marblettir, mismunandi gamlir. Fyrir ofan báða
úlnliði er töluverð fyrirferðaraukning, og er greinilegt, að þar er um
brot að ræða, sem mikið kalk hefur setzt í. Reikna má með, að brot
þessi séu a. m. k. 3—4 vikna gömul. Mikil eymsli virðast vera yfir
þessum brotum, og stafa þau að nokkru leyti frá brotunum sjálfum
og að nokkru leyti af því, að djúp för hafa myndazt á þessum stað
undan böndum. Ekki blæðir þó úr þessum förum. í kringum olboga
er einnig nokkur bólga og mar og drengurinn aumur þar, en getur
hreyft í olbogum. Um ökkla eru samskonar för eftir bönd, og er skinnið
nuddað af öðrum megin alveg inn að hásin, og eru mikil eymsli í þeim
fæti. Einnig er stóra táin vinstra megin mjög bólgin og marin.
Fljótlega eftir komu voru teknar röntgenmyndir af höfði, og var
ekki hægt að greina brot á þeim myndum. Kjálkar virtust heilir og
tennur fastar. Röntgenmyndir af handleggjum sýndu brotlínur báðum
megin í neðri enda upphandleggs alveg niður við liðinn, og virtust þau
brot ekki vera ný. Sennilega farin að gróa töluvert í góðri stöðu. Á
framhandlegg rétt ofan við úlnlið hægra megin sést, að báðar pípur
eru brotnar ogþau brot farin að gróa í sæmilegri stöðu. Yinstra megin er
einnig brot á báðum pípum. Þar hafa köstin gengið mikið úr skorðum.
Þar er komið mikið kalk, svo brot þetta virðist gamalt og sennilega
elzt brotanna. Á þessum stað hefur mikill skaði skeð. Sennilega hafa
vaxtarlínur eyðilagzt, og viðbúið er, að vöxtur verði lítill sem enginn
á þessum stað, og þarf að brjóta beinið upp og lagfæra, þegar húðin er
orðin slétt og gróin, en ekki er hættandi á aðgerð, fyrr en svo er komið.
Síðan drengurinn kom í spítalann, hefur hann verið hafður einn í
herbergi. Kunni hann vel við það fyrst, en nú er honum greinilega
farið að leiðast, hann er alltaf að kalla á fólk til að tala við sig. Fyrsta
daginn kúrði hann sig niður í rúmið, en síðan hefur hann setið uppi
og leikið sér. Hann er altalandi og virðist vera í meðallagi skýr. Hann
tekur fallega á leikföngum og er óvenju duglegur að teikna miðað við