Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1968, Blaðsíða 100
1968
— 98 —
Reykhóla. Farið var fram á, að byrgðir yrðu ákveðnir hverastaðir,
sem hætta stafaði af. Hefur ekki enn verið framkvæmt.
Grenivíkur. Skipbrotsmannaskýli eru 3 í hreppnum og talstöð í skýl-
inu á Þönglabakka. Öllum skólabörnum kennt sund.
C. Mannskaðarannsóknir og önnur réttarlæknisstörf.
Engin skýrsla barst frá Rannsóknarstofu Háskólans við Barónsstíg
fyrir þetta ár.
Rvík. Gerðar voru 89 réttarkrufningar á árinu. Leitað var álits míns
í 8 barnsfaðernismálum.
Akranes. Mannskaðarannsókn fór fram í sambandi við banaslys.
VIII. Skólaeftirlit.
Tafla X, A og B.
Skýrslur um skólaeftirlit bárust ekki úr eftirtöldum 14 héruðum:
Kleppjárnsreykja, Ólafsvíkur, Búðardals, Flateyjar, Þingeyrar, Flat-
eyrar, Suðureyrar, Súðavíkur, Kópaskers, Raufarhafnar, Nes, Eski-
fjarðar, Djúpavogs og Hveragerðis. Skýrslur um barnaskóla taka til
25547 barna, og gengu 21304 þeirra undir aðalskólaskoðun. Tilsvar-
andi tölur í unglinga-, mið- og gagnfræðaskólum eru 11835 og 9165 og
í menntaskólunum fjórum, Kennaraskóla Islands og Verzlunarskóla
Islands 3608 og 2688.
Rvík. Skólahúsnæði tekið í notkun haustið 1968: I Árbæjarskóla 6
stofur, ca. 3348 m3, í Vogaskóla 7 stofur ca. 3000 m3, og í Álftamýrar-
skóla 6 stofur, ca. 2740 m3.
Álafoss. Almenn skólaskoðun fer fram á haustin. Hálfsmánaðarlega
kemur læknir í heimavistarskólana að Klébergi á Kjalarnesi og Ásgarði
í Kjós. Að báðum þeim skólum er allvel búið. Gífurleg þrengsli eru í
Gagnfræðaskólanum að Brúarlandi. Skólahúsið er orðið gamalt og
óhentugt. Ráðgert er að hefjast sem fyrst handa um smíði nýs skóla-
húss.
Akranes. Auk almennrar skólaskoðunar að hausti í öllum skólum
hafði ég eins og að undanförnu viðtalstíma einu sinni í viku í barnaskóla
Akraness. I samráði við skólatannlækni var byrjað á tannburstun með
flúorupplausn í skólanum. Var það gert tvisvar á skólaárinu, og börnum
var bent á að bursta tennur sínar reglulega.
Stykkishólms. Allir nemendur skoðaðir eins og áður. Þvag var athug-
að hjá öllum börnum í barna- og miðskólanum í Stykkishólmi, prófað
fyrir eggjahvítu og sykri.