Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1968, Side 129
— 127
1968
ingum allt fram til 7—8 ára aldurs. Samt sem áður segir hún, að móðir
sín hafi verið fær um að sýna sér hlýju og ástúð, er því var að skipta.
P. virðist hafa verið mjög einræn og dul allt frá barnsaldri og segist
aldrei hafa haft trúnaðarsamband við foreldra sína eða getað tjáð
þeim sínar dýpstu tilfinningar. Segir hún, að hún hafi e. t. v. átt svolítið
auðveldara með að tjá sig við föður sinn.
Á heimili P. dvaldist einnig föðurafi hennar, sem dó, þegar hún var
7 ára gömul, og man hún eftir því, að hún tók dauða hans sér all-
nærri.
P. lék sér lítið með öðrum börnum, þótt nóg væri af leikfélögum
í nágrenninu. Hún eignaðist engar góðar vinkonur eða leikfélaga.
Segist frekar hafa viljað hjálpa föður sínum við búskapinn en vera að
leik. Þjáðist ávallt vegna feimni sinnar og hafi því orðið fremur fyrir
aðkasti og stríðni frá öðrum börnum, er hún fór að ganga í skóla.
P. gekk í barnaskóla ... .hrepps og lauk þaðan fullnaðarprófi, þegar
hún var 13 ára, með aðaleinkunn milli 6 og 7. Hún kveðst ekki hafa haft
áhuga á frekara bóklegu námi, en hins vegar hafði hún áhuga á því að
komast í húsmæðraskóla, en úr því varð þó aldrei.
P. segist ávallt hafa verið mjög fáfróð um kynferðismál og fékk
aldrei neina fræðslu í þeim efnum frá móður sinni. Hún segir, að
blæðingar hafi byrjað hjá sér, þegar hún var 13 ára. Ekki man hún til
þess, að henni hafi orðið mikið um það, þótt móðir hefði ekki búið
hana undir slíkt. Fyrstu raunverulegu fræðslu um kynferðismál segist
hún hafa fengið frá hálfsystur sinni, P., þegar hún var u. þ. b. 16—17
ára, og var það af brýnni nauðsyn, þ. e. hún var þá þegar komin út
í tilhugalífið með tilvonandi eiginmanni sínum, S. G-syni.
Fyrstu 3 árin eftir að barnaskólanámi lauk, dvaldist P. á heimili
sínu, vann heima fyrir, þar til hún réðst í vist til Reykjavíkur haustið
1948, þá 16 ára gömul.
Fljótlega eftir komuna til Reykjavíkur kynntist hún tilvonandi eig-
inmanni sínum, S. G-syni, sem var 7 árum eldri en hún. Eftir nokkra
viðkynningu hófst með þeim kynferðislegt samband. Segir, að sökum
fákunnáttu sinnar í kynferðismálum hafi hún litla grein gert sér fyrir
því, hvaða afleiðingar það gæti haft í för með sér, enda hefði hún
aldrei verið við karlmann kennd áður.
Um vorið 1949 fór P. heim til foreldra sinna, og S. réðst þangað í
kaupavinnu. Hún segir, að foreldrar hennar hafi vitað um samdrátt
þeirra og verið lítt um hann gefið sökum æsku hennar. Þau reyndu
samt ekki að stía þeim í sundur. Um haustið hringtrúlofuðust þau P.
og S., enda var hún þá orðin þunguð. S. fór aftur til Reykjavíkur, en
P. dvaldist áfram heima, þar eð móðir hennar hafði veikzt og hún
þurfti að hugsa um heimilið.
P. fæddi elzta barn sitt, E., þann .... 1950, og eftir það fór hún til