Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1968, Page 110
1968
108
Endurflokkanir, flokkanir á fólki, er ekki gat gefið blóð af ýmsura
orsökum, og ýmsar fleiri rannsóknir eru ekki meðtaldar í þessu uppgjöri.
D. Tilraunastöð Háskólans í meinafræði, Keldum.
Úr ársskýrslu tilraunastöðvarinnar:
VeirusjúkcLómar í mönnum.
Árið 1968 bárust tilraunastöðinni á Keldum sýni til veirurannsókna
frá 184 sjúklingum. Flest þessi sýni voru send af héraðslæknum vegna
gruns um inflúenzu, nokkur komu frá sjúklingum á sjúkrahúsum vegna
gruns um heilahimnu- eða eistnabólgu eftir hettusótt eða frá sjúkling-
um með hita af óþekktum orsökum. Mjög fá sýni komu vegna
bólgubletta í lungum. í janúar—febrúar tókst að greina inflúenzu af
Á2 stofni í Reykjavík, Álafosshéraði, á Hvolsvelli, í Laugaráshéraði,
Egilsstaðahéraði og Stykkishólmshéraði. 1 marz—apríl bárust sýni frá
faraldri í Reykjavík, á Egilsstöðum og Stykkishólmi. Sumir læknar
kölluðu þessa sótt inflúenzu, aðrir héldu, að sótt þessi væri annars konar
kvefsótt, og virtist meðgöngutími sjúklinga eftir smitun vera 3—5
dagar. Ekki tókst að rækta veirur frá sýnum, sem bárust úr þessum
faraldri, og sjúklingar hækkuðu ekki að inflúenzu-mótefnum í aftur-
bata. Þriðji „inflúenzufaraldurinn“ hófst í desember, og tókst að rækta
úr einum af fyrstu sjúklingunum í Reykjavík Á2 inflúenzuveiru, sem var
send World Health Influenza Center í London og ákvörðuð þar sem Á2
Hong Kong 1/68. Lítið fannst af veirulungnabólgu á árinu. Einn
sjúklingur reyndist hafa Q-fever. Engar mænusóttar- eða coxsackie-
veirur ræktuðust á árinu.
Sullaveiki.
Það er næsta almenn skoðun, að víða séu lögboðnar lyfjagjafir til að
hreinsa hunda af bandormum slælega af hendi leystar og hafi í sumum
héruðum nær engar verið sum ár. Þótti því ástæða til að safna sullum
úr sauðfé í nokkrum sláturhúsum. Töluvert barst af sullum til grein-
ingar, sumir áfastir við lifur. Einkum var lögð áherzla á að safna
sullum af sunnanverðum Austfjörðum, en þar fundust fáeinir echino-
kokksullir fyrir allmörgum árum. Allir sullir, sem bárust, reyndust
vera netjusullir (C. tenuicollis). Þá voru gerðar byrjunartilraunir með
nýtt ormalyf gegn bandormum, en lyf það, sem um langt árabil hefur
verið notað, finnst mörgum hafa allhrottaleg áhrif á hunda. Gáfu til-
raunir þessar góða raun. Verður þeim væntanlega haldið áfram.