Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1968, Blaðsíða 120
1968
118
veitunnar. Enn eru þó nokkur heimili, sem ekkert kalt vatn hafa. Rottu
verður alltaf vart öðru hverju, en er haldið í skefjum með eitri.
Akranes. Neyzluvatn bæjarins alltaf slæmt, en byrjað var á fram-
kvæmdum til endurbóta á vatnsbóli.
Reykhóla. Flest hús í lagi, góð eða í meðallagi góð, einstaka léleg og
örfá óhæf. Vatnsból mjög misjöfn og vatn vafalaust óhæft til drykkjar
í mörgum þeirra. Þrifnaður úti við mjög misjafn, en víðast góður.
ólafsfj. Húsakynni og þrifnaður mjög batnandi. Útrýming mein-
dýra stöðug allt árið, og ber ekki mikið á rottum, helzt á hafnarsvæð-
inu.
Grenivíkur. Húsakynni verða að teljast góð. Þrifnaður innan húss
víðast góður, en mætti sums staðar vera betri utan húss. Neyzluvatn
hefur verið gott. Frárennsli á Grenivík ekki í nógu góðu lagi, skólp-
ræsin ná ekki lengra en rétt niður fyrir bakka, er húsin standa á.
Eskifj. Vatnsból þorpsins lélegt. Húsakynni víðast að verða þolan-
leg. Enn eru til heilsuspillandi íbúðir. Aðstaða til slátrunar sauðfjár
er í lakasta lagi á Eskifirði.
3. Sullaveikivarnir.
Um þær vísast til stuttrar umsagnar í skýrslu Tilraunastöðvar Há-
skólans í meinafræði, Keldum.
4. Matvælaeftirlit.
Gerlarannsóknastofa Fiskifélags íslands hefur látið í té eftirfar-
andi skýrslu um rannsóknir sínar á matvælum vegna matvælaeftirlits
ríkisins á árinu:
Til gerlarannsókna bárust Gerlarannsóknadeild Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins 1491 sýnishorn af mjólk, mjólkurvörum, öðrum mat-
vælum, neyzluvatni o. fl., sem tekin voru af heilbrigðisyfirvöldunum
eða í samráði við þau. Sýnishorn bárust frá borgarlækninum í Reykja-
vík (1375), heilbrigðisfulltrúa Akureyrar (4), héraðslækninum í Borg-
arnesi (12), héraðslækninum í Hafnarfirði (57), heilbrigðiseftirliti
Keflavíkur (3), héraðslækninum í Laugarási (8), héraðslækninum í
Kópavogi (8), Héraðslækninum á Reykjalundi (1), héraðslækninum
á Sauðárkróki (9), héraðslækninum á Seyðisfirði (2), heilbrigðisfull-
trúa Siglufjarðar (3), veitingasölu- og gististaðaeftirliti ríkisins (3),
héraðslækninum í Vestmannaeyjum (4) og héraðslækninum á Þórs-
höfn (2).
Sýnishornin skiptust þannig eftir tegundum: