Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1968, Blaðsíða 132
1968
— 130 —
ugum ótta og spennu, þegar hann var heima, og þurfti hún oft að leita
á náðir M. Á-dóttur, systur S., með börnin, þegar S. var heima með
drykkjulæti.
f júní 1965 var S. sendur austur að Litla-Hrauni, en kom þaðan
aftur í nóvember sama ár. Fékk P. þá aðstoð Reykjavíkurborgar, þar
sem hún var í borgarhúsnæði, og var S. bannað af bæjaryfirvöldum að
hafa nokkurn aðgang að íbúðinni eða önnur afskipti af P. Stuttu síðar
var S. sendur aftur austur að Litla-Hrauni og dvaldi þar þá þar til í
maí 1966.
Haustið 1965 hófst eftirlit Barnaverndarnefndar með börnum P. og
þá fyrst og fremst vegna framkomu S. gagnvart þeim. Átti hann það
m. a. til að fara á brott með tvo eldri drengina án vitundar P. Var
því ákveðið að láta tvo eldri drengina á barnaheimili vegna heimilis-
aðstæðnanna, en ekki vegna neinnar vanrækslu við þá af hendi P. Voru
þeir því sendir á barnaheimilið að .... í september 1966, og munu
þeir dveljast þar enn.
P. segir, að hún hafi orðið mjög döpur og verið alllangt niðri, þegar
hún sá fyrir endann á samskiptum þeirra S., og segist hafa farið að
neyta víns í nokkru óhófi og sækja skemmtistaði í u. þ. b. þrjá mánuði
í röð. P. vann úti um þessar mundir í fatahreinsun og við skúringar á
kvöldin. Börnin hafði hún á dagheimilum.
I janúar 1966 tók hún upp kunningsskap við núverandi sambýlis-
mann sinn, S. G-son. Segir hún, að hann hafi fyrst oft gætt barna henn-
ar á kvöldin, þegar hún var úti, en síðar óx kunningsskapurinn, og hún
segir, að hann hafi hjálpað sér til að hætta allri vínneyzlu, þrátt fyrir
það að hann hafi verið nokkuð vínhneigður sjálfur.
Þau fóru að búa saman vorið 1966 og búa enn saman í óvígðri sam-
búð. Þau eiga eina dóttur saman, . .. ., sem fæddist..... 1967. P.
segir, að sambúð þeirra hafi ávallt verið mjög góð. Hún segist alveg
hafa hætt vínneyzlu, eftir að hún hóf sambúðina með S. og einungis
bragðað vín tvisvar á s. 1. ári og þá ekki fundið nein áhrif.
Lýsir hún S. sem mjög hægum og meinlausum manni, sem ávallt
hafi verið mjög góður sér og börnunum. Hún segir, að hann muni hafa
minnkað vínneyzlu sína mikið, frá því sem áður var, eftir að hann hóf
sambúðina með henni, og hann neyti aldrei víns heima hjá sér.
Heimilislíf P. virðist yfirleitt hafa verið mjög einfaílt og óbrotið.
Hún virðist ekki gera miklar kröfur til lífsins. Þau S. fara mjög sjaldan
út, einstaka sinnum í kvikmyndahús og einu sinni eða tvisvar farið á
dansleik s. 1. ár. Hún á engar vinkonur, sem hún heimsækir reglulega. Á
kvöldin situr hún oftast með handavinnu, þegar hún hefur lokið ræstingu
í .... Hún segist alls ekki vilja taka upp á því að sækja meira út af
heimilinu, því þá geti svo farið, að sér fari að leiðast heima fyrir og
að hún yrði þá bara óánægðari.
P. eignaðist yngsta barnið, sem hún átti með S. K-syni, S. H., .. • •