Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1968, Qupperneq 125
— 123 —
1968
6. Áfengis- og tóbaksnotkun. Áfengisvarnir.
Rvík. Áfengisneyzla landsmanna árið 1968 varð 2,11 lítrar á mann
af 100% alkóhóli. 1 fangageymslu lögreglunnar gistu 6444 manns á
árinu, flestir vegna ölvunar. Níu þeirra banaslysa, sem talin eru
undir lið VII A, má rekja beint til neyzlu áfengis.
Reykhóla. Áfengisnotkun sama og engin.
Ólafsfj. Áfengisvarnir engar.
7. Samkomustaðir og félagslíf.
Ekkert í frásögur fært.
8. Framfarir til almenningsþrifa.
Rvík. Til starfa tóku á árinu tvær nýjar lyfjabúðir, Borgarapótek og
Háaleitisapótek. I fyrsta skipti var haldið í Reykjavík mót borgar-
lækna Norðurlanda, og voru þar saman komnir 15 embættislæknar
nokkurra stærstu borga allra landanna, þar af 12 útlendir. Á þessu
móti voru rædd ýmis sameiginleg vandamál, og voru þau helzt: hóp-
bólusetningar, deyfilyfja- og ávanalyfjavandamálið, mengunarvanda-
mál, og ennfremur gerðu borgarlæknir höfuðborga allra landanna grein
fyrir störfum sínum hver fyrir sig. Síðasta norræna borgarlæknamót
og jafnframt hið fyrsta eftir síðustu heimsstyrjöld var haldið í Kaup-
mannahöfn árið 1961. Ákveðið var nú að halda þessi mót annaðhvert
ár framvegis. Á borgarstjórnarfundi í apríl voru lagðar fram tillögur
Læknisþjónustunefndar Reykjavíkur um læknisþjónustu utan sjúkra-
húsa. Samkvæmt beiðni borgarstjórnar mætti borgarlæknir á fund-
inum og skýrði tillögur nefndarinnar, en tillögunum var síðan vísað
til 2. umræðu og þær þá samþykktar með samhljóða atkvæðum. Tillög-
urnar eru í 24 liðum.
Akranes. Mikið var unnið við höfnina. Bókasafnshús steypt upp að
fullu. Sútunarverksmiðjan, sem hætt var störfum, hóf störf á ný.
Dalvíkur. Á Dalvík var unnið að gatnagerð, holræsa- og vatnsveitu-
kerfið endurbætt, hafnargerðinni haldið áfram. I Svarfaðardal var
borað eftir heitu vatni.
Grenivíkur. Frystihúsið, sem verið hefur í byggingu, tók til starfa
upp úr áramótunum.
Breiðumýrar. Á árinu hóf Kísilverksmiðjan í Mývatnssveit starfsemi
sína. Þar hefur ný atvinnugrein haldið innreið sína í héraðið og þétt-
býli risið upp. I sambandi við þessa starfsemi hafa komið fram ýmis
ný viðhorf og viðfangsefni, sem héraðslæknir hefur þurft að hafa af-
skipti af.