Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1968, Blaðsíða 113
— 111 —
1968
Meðal þess, sem fannst athugavert við skoðun:
13 konur höfðu blóðrauða 50—59%
150 — — — 60—69%
1091 — — — 70—80%
1254 konur höfðu því blóðrauða 80% eða lægri.
42 konur höfðu hækkaðan blóðþrýsting (140/90 eða hærri, tvisvar
eða oftar), án annarra einkenna.
291 — — bjúg, án annarra einkenna.
70 — — hvítu í þvagi, án annarra einkenna.
36 — — bjúg, ásamt hvítu í þvagi.
155 — — hækkaðan blóðþrýsting, ásamt bjúg og/eða hvítu í
þvagi.
1 — — jákvætt Kahnpróf.
Afengisvamadeild.
Á þessu ári voru 53 menn frumskráðir, 48 karlar og 5 konur, og
áttu allir búsetu í Reykjavík, að 5 undanteknum. Á framfæri þessa
fólks voru 59 börn innan 16 ára aldurs, 54 á framfæri karla og 5 á
framfæri kvenna. Auk þeirra 53 manna leituðu til deildarinnar 259
manns frá fyrri árum. Sóttu deildina þannig samtals 312 sjúklingar,
sem lækningar nutu og félagslegrar fyrirgreiðslu ýmiss konar. Urðu
heimsóknir þeirra í meðferðar skyni alls 5184, og eru þá ekki meðtalin
45 viðtöl, er fram fóru við þá í viðtalsstofu læknisins. Meðaltal heim-
sókna á mann verður því þetta árið 16,8, og er það svipuð tala og að
undanförnu.
Húð- og kynsjúkdómadeild.
Á deildina komu alls 738 manns, þar af 392 vegna gruns um kyn-
sjúkdóma. Tala rannsókna var 1870, þar af 1357 vegna kynsjúkdóma.
Af þessu fólki reyndust:
*
11 hafa sárasótt, þar af eitt nýtt tilfelli (3 konur og 8 karlar),
1 — linsæri (karlmaður),
136 — lekanda (44 konur og 91 karlmaður),
6 — flatlús (1 kona og 5 karlar),
0 — höfuðlús,
22 — maurakláða (3 konur, 7 karlar og 12 börn),
3 — kossageit (börn),
262 — aðra húðsjúkdóma (127 konur, 93 karlar og 42 börn).
238 voru rannsakaðir vegna gruns um kynsjúkdóma (72 konur og
166 karlar).
Svo í skýrslu H. R.