Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1968, Blaðsíða 117
115 —
1968
aðbúnaðar 327 barna. Tilefni voru: drykkjuskapur 40, deyfilyfjanotk-
un 7, geðveiki og geðrænir erfiðleikar 11, vanvitaháttur 3, ósamkomulag
15, hirðuleysi 27, veikindi, húsnæðisleysi o. fl. 35. Undir stöðugu eftir-
liti nefndarinnar voru í árslok 64 heimili vegna aðbúðar 160 barna.
Á árinu útvegaði nefndin alls 304 börnum dvalarstað um lengri eða
skemmri tíma, af þeim fóru 28 á einkaheimili. Nefndin fékk til með-
ferðar 9 hjónaskilnaðarmál vegna deilna um forræði barna, og eru þær
tölur hærri en síðasta ár. Nefndin mælti með 29 ættleiðingum, þar af
var um 14 stjúpbörn að ræða. Nefndin hafði á árinu afskipti af 184
börnum vegna samtals 403 brota, 166 piltum og 18 stúlkum. Brot
þeirra voru sem hér segir: Hnupl og þjófnaður 180 (173 piltar og 7
stúlkur), innbrot 91 (p.), svik og falsanir 3 (p.), skemmdir og spell 61
(p.), flakk og útivist 13 (9 p. og 4 st.), lauslæti og útivist 1 (st.), meiðsl
og hrekkir 3 (p.), ölvun 29 (23 p., 6 st.), ýmsir óknyttir 22 (p.). Um
talsverða fækkun er að ræða á fjölda skráðra brota frá árinu áður. ölv-
unarbrotum hefur fækkað um nærfellt helming. Á öðrum brotum hefur
orðið nokkur fjölgun frá því á síðasta ári, einkum nauðgunarbrotum,
innbrotum og þjófnaði.
Kvenlögreglan hafði afskipti af 46 stúlkum á aldrinum 12—19 ára,
einkum vegna útivistar, lauslætis, þjófnaðar og áfengisneyzlu. Af fram-
kvæmdum í þágu barnaverndarstarfsins má geta þess, að lokið var
byggingu viðbótarálmu við Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins. Rúmar
álman 14 börn. Fest voru kaup á húseigninni Ásvallagötu 14, og er þar
fyrirhugað að reka fjölskylduheimili. Hafinn var undirbúningur að
stofnun sjúkradeildar fyrir börn og unglinga með geðræna sjúkdóma.
Á árinu voru ráðin 7 ný fóstruheimili, þ. e. einkaheimili, sem taka börn
til dvalar um skamman tíma, allan sólarhringinn.
Dalvíkur. Dagheimili fyrir börn var um nokkurra vikna skeið á
Böggvisstöðum.
J. Vinnuheimilið að Reykjalundi.
Orsakir örorku vistmanna, sem innrituðust á árinu, voru:
1. Berklaveiki (eða afleiðing hennar) ........... 19 ( 6,3%)
2. Sjúkdómar í miðtaugakerfi .................... 73 (24,2%)
3. Bæklanir (eftir slys, meðfæddar o. fl.) ....... 45 (15,0%)
4. Lungnasjúkdómar (aðrir en berklar) ............. 9 (3,0%)
5. Hjarta- og æðasjúkdómar ....................... 17 ( 5,6%)
6. Gigtsjúkdómar ................................. 53 (17,6%)
7. Geðsjúkdómar .................................. 48 (16,0%)
8. Ýmislegt ...................................... 37 (12,3%)
301 (100%)