Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1968, Side 156
1968
— 154 —
fyrst eftir 2 daga. Hún fékk stórt sár á ristarkverk vinstra megin og
annað á hægra hvirfilbeini. Var hún víða með skrámur og rispur og
víða marin. Hlaut brot á hægra viðbeini. Hún lá á Landakoti til 19. 7.,
var þá smáblettur ógróinn á vinstra fæti, en öll hin sárin voru gróin.
Hún hafði ennþá nokkur óþægindi í öxl, en engin einkenni frá mið-
taugakerfi. Það fannst heldur ekkert neurologiskt, skömmu eftir að hún
var lögð inn á Landakot þ. 13. 6. 1965.
Síðan slysið skeði, hefur hún oft haft höfuðþyngsli, verið svefnug,
fellur í svefn án tilefnis. Minnið ekki mikið verra, og það er ekki verul.
svimi. Hún þreytist við vinnu og á erfiðara með að drífa sig að fram-
kvæma verk sín.
Sjúkl. var lögð inn á Landspítalann deild IV 21. 8. til 31. 8. ’67 vegna
aðgerðar á sárum. Var þá tekið heilarit, sem var eðlilegt. Það var
ekkert brot á höfuðkúpu, er hún var á Landakoti.
Skoðun 7. 8. 1968: Sjúkl. er hraustleg útlits og virðist psykiskt eðli-
leg. Tal er eðlilegt. Höfuðkúpa er eðlileg. Finnur vel lykt með báðum
nösum. Sjón er ekki prófuð. Augnbotnar eðlilegir. Sjónsvið eðlilegt.
Ljósop eru jöfn, hringlaga, svara eðlilega ljósi, accommodation, conver-
gens. Hreyfingar eru eðlilegar, og það eru enginn nystagmus. Húðskyn
í andliti er eðlilegt. Corneal reflexar eru líflegir báðum megin. Tygg-
ingavöðvar eru eðlilegir báðum megin. Engin andlitsparesa. Hún virðist
heyra vel með báðum eyrum, gróft prófað. Kokreflex er eðlilegur. Góm-
bogar lyftast jafnt. Röddin er eðlileg. Sternocleido-vöðvar og trapezii
hafa eðlilegan kraft og viðkomu. Tungan devierar ekki.
Vöðvakerfi:
Vtlimir: Það er engin atrofi og góðir kraftar, eðlileg stelling og
tonus. Gangur er eðlilegur. Romberg er neg. Reflexar eru jafnir á sinum
á öllum extr. Ilreflex er eðlilegur. Kviðreflexar koma fram. Það er
ekki Bab[inski].
Skyn: Húðskyn, stöðu- og vibrationskyn er allsstaðar eðlil. Blóð-
þrýstingur 120/75. Púls 78.
Það er dálítið þykkni, mest lateralt, á hægra viðbeini, sem er dálítið
aumt, og ör á vinstri rist.
Álit: Sjúkl. hefur fengið fremur slæman heilahristing, og svara
einkenni hennar til þess“.
Loks liggur fyrir vottorð .... [starfandi] læknis, Reykjavík, dags.
28. 6. 1968, svohljóðandi:
„Samkvæmt ósk B. M-dóttur skal tekið fram, að skoðun mín er sú,
að slappleiki í hægri öxl (sem er dálítið lægri en vinstri öxlin) stafi
ekki frá viðbeinsbrotinu, heldur sé afleiðing af höfuðtraumanu og því
á central basis“.
Slasaða mætti til viðtals og skoðunar hjá undirrituðum 26. júní 1968.
Henni segist frá um atburði varðandi slysið svipað og frá er greint