Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1968, Blaðsíða 152
1968
— 150 —
glerja talin 0,1, en á vinstra auga 1,0, og hægra auga er lýst þannig,
að ör sé á hornhimnu, iris að nokkru adherent í örinu, en linsan tær
og fundus eðlilegur.
I nýju vottorði .... [augnlæknis] frá 10. okt. 1967 er ástand augans
og sjón lýst nokkru nánar, og er það vottorð svohijóðandi:
„H. ó-son......Reykjavík, leitaði til mín 27. september 1966. Sagð-
ist hann hafa verið að vinna við að setja ölflöskur í kassa, er ein flaskan
sprakk og flís lenti í hægra auga hans.
Við skoðun sást skurður á auganu, er náði nærri frá miðri cornea
(glæru) og 2 mm út í hvítuna nefmegin. Á glærunni náði skurðurinn
í gegn inn í fremra augnhólf, en á hvítunni var hann grunnur, rétt
rispa í yfirborðið. Lithimnan að nokkru klemmd í sárinu.
Hann lá á Sjúkrahúsi Hvítabandsins 27. september — 15. október
1966, meðferð: rúmlega og lyf.
Sjón 17. 10. 1966 án glers með gleri
Hægra auga 0,1 0,4 (+ 4,0 sph = — 5,0 cyl 140°)
Vinstra auga 1,0 1,0 (+ 0,75 sph)
Hóf vinnu 27. október 1966.
Sjón 9. 1. 1967 án glers með gleri
Hægra auga 0,1 0,5 (+ 4,0 sph = — 3,0)cyl 140°) sér nokkra stafi í 0,7
Vinstra auga 1,0 1,0 (+ 0,75 sph)
Skoðun 29. 9. 1967 án glers með gleri
Sjón hægra auga 0,1 0,5 (+ 4,0 sph. = — 3,0 cyl 140°) sér nokkra stafi í 0,7
Sjón vinstra auga 1,0 1,0 (+ 0,75 sph.)
Hægra auga: Hvítt. Hreyfingar eðlilegar. ör, er nær frá limbus
cornea (glærubrún) kl. 3.30 út undir miðja cornea. Lithimnan gróin
við örið að nokkru. Augasteinn tær. Augnbotn eðlilegur.
Vinstra auga: Eðlilegt."
Ályktun: Hér er um að ræða 19 ára gamlan mann, sem slasast við
vinnu sína fyrir rúmlega einu ári, fékk þá glerbrot í auga með þeim
afleiðingum, að hann hefur nær misst sjón á auganu. Sjón þessi bætist
að nokkru leyti með gleri, en ekki kemur fram í vottorði, hvort þessi
sjón nýtist að fullu.
Vegna slyssins verður að telja, að maðurinn hafi hlotið tímabundna
og varanlega örorku, og er sú örorka talin hæfilega metin þannig:
1 1 mánuð 100% örorka
1 1 — 75% —
1 2 — 50% —
Og síðan varanleg örorka 20%.“