Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1968, Blaðsíða 126
Viðbætir,
Læknaráðsúrskurðir 1970
1/1970
Ármann Kristinsson, sakadómari í Reykjavík, hefur með bréfi, dags.
19. júní 1969, leitað umsagnar læknaráðs í sakadómsmálinu: Ákæru-
valdið gegn P. B.-dóttur.
Málsatvik eru þessi:
Með ákæruskjali, dags. 5. maí 1969, var höfðað opinbert mál á hend-
ur P. B-dóttur....... Reykjavík, fæddri .... 1932, fyrir líkamsmeið-
ingar á syni sínum 5 ára, S. S-syni, samkvæmt 218. gr. almennra
hegningarlaga nr. 19 1940, og brot á 1. mgr. 191. gr. sömu laga, með
því að binda drenginn á höndum og fótum og við rúm hans fimmtu-
dagsnóttina 27. febrúar 1969 og berja til hans, er ’hann veitti mót-
spymu, og með því að binda hann á höndum og við rúmið nótt eina
um það bil viku áður, allt með þeim afleiðingum, að drengurinn hlaut
margvíslega áverka, svo sem brot á báðum úlnliðum og báðum upp-
handleggjum rétt ofan við olboga, mikla bólgu og mörg sár í andliti og
víðar um líkamann, svo og með því að binda drenginn oftsinnis endra-
nær um nætur niður í rúmið, stundum reyrðan bæði á höndum og fót-
um eða aðeins á höndum, með belti eða nylonsnúru, svo að djúp för
mynduðust eftir á hálsi, úlnliðum og ökklum.
I málinu liggja fyrir þessi læknisvottorð:
1. Vottorð Barnaspítala Hringsins, dags. 5. marz 1969, undirritað
af Kristbirni Tryggvasyni yfirlækni, svohljóðandi:
„Skýrsla um barnið S. S.-son, ...., Reykjavík, er talinn vera 5 ára
gamall og lagður var í Bamaspítala Hringsins þ. 27. febrúar 1969
kl. 17.40.
Áðurnefnt barn kom frá Slysavarðstofu Reykjavíkur, en þangað
hafði hann verið fluttur að tilhlutan barnaverndamefndar vegna
meintra misþyrminga.
Þegar drengurinn kemur í spítalann, er hann með fullri meðvitund,
svarar spurningum um, hvað hann heiti og hvar hann eigi heima, en
talar ekkert að fyrra bragði og virðist hálf ringlaður og hræddur,
a. m. k. fyrst í stað. Fljótlega fór hann að biðja um mat, og gleypti