Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1968, Blaðsíða 161
159
1968
Við skoðun á Landspítalanum í desember 1967 virtist H. nokkuð sljór
og um leið nokkuð órólegur, en ekki bar á neinum taltruflunum, svo sem
dysfasi eða dysarthri. Ekki fannst neitt óeðlilegt við neurologiskar
skoðanir, en hins vegar fannst greinileg dæld og stallur yfir vinstri
augnbrún og dæld á hvirfli. Röntgenmyndir af höfuðkúpu sýndu ekki
neitt óeðlilegt. Mænuvökvi var eðlilegur. Heilarit var eðlilegt. Loft-
mynd af höfði (Loftencephalography) sýndi einkenni um heilarýrnun
(atrofia cerebri). Áður höfðu verið teknar röntgenmyndir af höfði sjúk-
lingsins, en eftir slysið, og voru þær taldar sýna einkenni um höfuð-
kúpubrot „fractura í tabula interna“ (Sbr. bréf Ásmundar Brekkan
yfirlæknis, dags. 9. janúar 1968, sem hann skrifaði Rögnvaldi Þor-
leifssyni yfirlækni, sjúkrahúsinu, Neskaupstað).
I læknabréfi Taugadeildar Landspítalans segir, að H. hafi slæmt
post-commotionelt syndrome.
Reyndi H. að byrja að vinna í janúar 1968 og vann þá í 2 mánuði,
og hefur hann að sögn unnið mjög lítið síðan. Ber mjög á úthalds-
leysi hjá honum, og hann á mjög erfitt með að einbeita huganum, og
minnið er lélegt. Hann þykir ekki lengur nógu góður til vinnu, og í vott-
orði .... verksmiðjustjóra hjá S. R., ...., kemur fram, að minni H.
er mjög skert frá því, sem var fyrir slysið, en H. hafði unnið hjá hon-
um árum saman fyrir slysið. Segist .... hafa tekið eftir þessum breyt-
ingum þegar í júní 1967.
H. telur ástandið í dag heldur betra en það var, þegar hann útskrif-
aðist úr Landspítalanum 15. des. 1967, og telur hann enga breytingu
hafa orðið á því s.l. eitt ár a. m. k. Fyrir slysið segist hann hafa verið
mjög heilsugóður og ekki hafa borið á áðurnefndum einkennnum.
Skoðun: Fullkomlega áttaður á stað og stund, engin einkenni um
taltruflanir, svo sem dysfasi eða dysarthri. Allar hreyfingar eru mjög
hægar. Nokkuð ber á stami hjá honum. Mjög erfitt er að fá fram hjá
honum góða sjúkrasögu, því minni hans virðist ekki sem bezt. Það er
dæld á höfði, eins og lýst er í skoðun Landspítalans.
Heilataugar: Ekkert óeðlilegt að finna.
Vöðvakerfi: Tonus, trofik, grófir kraftar og sinaviðbrögð eru eðlileg.
Ilrefrexar eru eðlil. Gangur er eðlilegur. Engin ataxi á höndum eða
fótum. Romberg neikvæð.
Skyn: Sársauka-, snerti-, stöðu- og titringsskyn eðlil.
Blöðrustarfsemi eðlileg að sögn.
Heilarit: (Lsp. 28. 11. 69) var eðlilegt. Blóðþrýstingur 160/90.
Álit: H. hefur fengið allslæman heilahristing (commotio cerebri) við
áverkann, og verða áðurnefndar kvartanir að teljast afleiðingar hans.
H. á nú mjög erfitt með að fá vinnu, þar eð hann afkastar ekki eins
miklu og áður. Ástandið hefur að sögn verið óbreytt s.l. eitt ár a. m. k.,
og tel ég mjög ósennilegt, að einkennin (þ. e. post-commotionel syn-
drome) breytist úr þessu.