Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1968, Blaðsíða 141
— 139 —
1968
en aldur brota á neðri endum hægri framhandleggsbeina að
minnsta kosti 4 vikur. Brot á neðri enda vinstra geislabeins
7—10 daga gamalt og vafalaust yngra en brot á h. fram-
handleggsbeinum. Fellst læknaráð á ofangreinda álitsgerð.
Ad 2. Hugsanlegt er, að framhandleggsbrotin hafi getað orðið við
það, að drengurinn var að reyna að losa sig úr fjötrunum, en
slíkt er vart hugsanlegt, að því er snertir upphandleggsbrotin.
Ad 3. Ekki líklegt, en hugsanlegt.
Ad 4. Læknaráð fellst á niðurstöður geðheilbrigðisrannsóknar Ás-
geirs Karlssonar.
Greinargerð og ályktunartillaga réttarmáladeildar, dags. 2. febrúar
1970, staðfest af forseta og ritara 17. apríl s. á. sem álitsgerð og úr-
skurður læknaráðs.
Málsúrslit: Með dómi sakadóms Keykjavíkur 29. júní 1971 var ákærða P. B-dóttir
dæmd í 18 mánaða fangelsi skilorðsbundið í 5 ár og henni gert að greiða allan
sakarkostnað.
2/1970
Guðmundur Jónsson, borgardómari í Reykjavík, hefur með bréfi,
dags. 7. nóvember 1969, skv. úrskurði, kveðnum upp á bæjarþingi
Reykjavíkur 27. október s. á., leitað umsagnar læknaráðs í málinu nr.
2494/1964: G. P-son gegn fjármálaráðherra f. h. ríkissjóðs.
Málsatvik eru þessi:
1. Þau, er greinir í úrskurðum læknaráðs, dags. 4. júní 1965 og 23.
desember 1966.
2. í málinu liggur fyrir læknisvottorð . .. ., [starfandi læknis í
Reykjavík], dags. 18. ágúst 1967, vegna umsóknar um örorkubætur,
svohljóðandi:
„I.
Fullt nafn
Fd. og ár
Heimili
Staða eða starf
Hjsk.stétt og staða maka
Skólamenntun eftir barnaskóla
Sémám, verklegt eða annað
II.
S j úkdómsgreining:
G. P-son
1903
...., Reykjavík
Trésmiður
Kvæntur
Iðnskóli
Trésmíðanám
Depressio mentis, ulcus ventriculi,
amputatio digiti II. manus dxt.,
seq. op. plastica ulceris (radia-
tionis seq.) Deg. disci inter-
vertebralis.