Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1968, Blaðsíða 158
1968
— 156 —
Greinargerð og ályktunartillaga réttarmáladeildar, dags. 8. desember
1970, staðfest af forseta og ritara 31. desember s. á. sem álitsgerð og
úrskurður læknaráðs.
Málsúrslit eru enn óorðin.
8/1970
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði hefur með úrskurði, kveðnum upp á
bæjarþingi Hafnarfjarðar 5. október 1970, leitað umsagnar læknaráðs
í málinu nr. 116/1970: H. Þ-son gegn Fiskimjölsverksmiðjunni h.f.,
Njarðvík.
Málsatvik eru þessi:
Hinn 29. apríl 1967 varð stefnandi máls þessa, H. Þ-son.....f. . .
desember 1931, fyrir slysi við vinnu í fiskimjölsverksmiðju stefnda í
Njarðvík, Gullbringusýslu, með þeim hætti, að hann féll af vinnupalli,
skall á hnakkann á steingólf og rotaðist.
I málinu liggur fyrir örorkumat Stefáns Guðnasonar læknis, dagsett
28. apríl 1970, svohljóðandi:
„Vinnuslys 29. apríl 1967.
Samkvæmt lögregluskýrslu vildi slys þetta til 5. Fiskimjölsverksmiðju
Njarðvíkur......læknir í Keflavík kom á slysstað, og var slasaði flutt-
ur þaðan í sjúkrabifreið í sjúkrahúsið í Keflavík.
Fyrir liggur vottorð [síðast nefnds] læknis, dags. 1. ágúst 1969,
svohljóðandi:
„H. Þ-son, ... ., fæddur .. des. 1931, slasaðist árið 1967, er hann
var við vinnu í Innri-Njarðvík. Eg var kvaddur á slysstað, og hafði H.
hrapað úr talsverðri hæð og misst meðvitund, en raknaði fljótlega við
Hann hafði hlotið stórt sár á hnakka, og lét ég þegar flytja hann í
sjúkrahúsið í Keflavík, og þar saumaði ég sárið, en síðan lá H. þar
nokkurn tíma.
Ekki sá ég merki ölvunar á manninum, né heldur fann ég vínlykt af
honum, enda þótt ég kæmi nærri vitum hans, er ég gerði að sárinu.“
Fyrir liggur einnig vottorð Jóns K. Jóhannssonar, sjúkrahúslæknis
í Keflavík, dags. 4. júlí 1969:
„Sem svar við bréfi yðar frá 1. júlí varðandi H. Þ-son skal eftir-
farandi upplýst. I sjúkraskrá H. ritaðri af .... [fyrmefndum] lækni,
segir orðrétt: Féll niður af vél, þar sem hann var að vinna í fiskimjöls-
verksmiðju í Innri-Njarðvík. Hann datt aftur fyrir sig, og skall hnakk-
inn í steingólf. Viðstaddir sögðu, að hann hefði misst meðvitund um
stund. Er að var komið, kastaði hann mikið upp. Þetta gerðist um kl.
16,30 þann 29. 4. 1967. Við komu í sjúkrahús er hann ruglaður nokkuð,
en þó með rænu. Smáskurður er á hnakka, og er hann saumaður í stað-