Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1968, Síða 101
— 99
1968
Blönduós. Haustskoðun að venju. Haldið var áfram byggingu heima-
vistarskólans að Reykjum við Reykjabraut. Að þessum skóla standa 6
hreppar sýslunnar.
Ólafsfj. Byrjað að grafa fyrir grunni gagnfræðaskóla.
Dalvíkur. Heldur dregur úr tannskemmdum nemendanna, og viðgerð-
um tönnum fjölgar. Tannlækninum á Dalvík að þakka.
Grenivíkur. Börnin skoðuð á haustin og einnig á vorin.
Búöa. Börnin skoðuð á haustin, yfirleitt hraustleg og vel útlítandi.
Keflavíkur. Hjúkrunarkona, sem hefur fast starf í Grindavík, var nú
ráðin þar sem skólahjúkrunarkona og ákveðið, að hún vinni 1 klst á
viku til eftirlits og héraðslækni til aðstoðar. Skólahj úkrunarkona var
ráðin til starfa við Barnaskóla Njarðvíkur, og starfar hún 2 stundir á
viku. Jafnframt var ráðin skólahjúkrunarkona í fullt starf við Barna-
og Gagnfræðaskóla Keflavíkur.
IX. Heilbrigðislöggjöf.
Á árinu voru sett þessi lög, er til heilbrigðislöggjafar geta talizt (þar
með taldar auglýsingar birtar í A-deild Stjórnartíðinda):
1. Lög nr. 15 28. marz, um breyting á umferðarlögum, nr. 26 2. maí
1958.
2. Umferðarlög nr. 40 23. apríl.
3. Lög nr. 43 2. maí, um breyting á lögum um tilbúning og verzlun
með ópíum o. fl., nr. 14 20. júní 1923.
4. Lög nr. 55 2. maí, um eftirlit og mat á fiski og fiskafurðum.
5. Lög nr. 85 31. desember, um eiturefni og hættuleg efni.
Þessar reglugerðir og samþykktir varðandi heilbrigðismál voru gefn-
ar út af ríkisstjórninni (birtar í B-deild Stjórnartíðinda):
1. Reglugerð nr. 5 12. janúar, um geislavarnir ríkisins.
2. Skipulagsskrá nr. 6 15. janúar fyrir vistheimilið Sólborg á Akur-
eyri.
3. Auglýsing nr. 19 6. janúar, um nýja Lyfjaverðskrá II og um viðauka
nr. 1 og 2 við hana.
4. Auglýsing nr. 40 21. marz, um viðauka og breytingar nr. 3 við
Lyfjaverðskrá II frá 15. janúar 1968.
5. Samþykkt nr. 58 16. febrúar, um afgreiðslutíma verzlana í Hafnar-
firði.
6. Auglýsing nr. 88 18. marz, um varnir gegn hringskyrfi á nautgrip-
um í Eyjafirði.
7. Auglýsing nr. 89 1. apríl, um varnir gegn gin- og klaufaveiki.
8. Auglýsing nr. 90 4. apríl, um nýja Lyfjaverðskrá III, dýralyf, B.,
sérlyf.