Dagur - 12.02.1988, Síða 9
Reykjavíkur. Upplagið var stórt, lík-
lega 12 þúsund eintök og seldist allt.
Ég varð vitni að því þegar Haukur
var að skrifa þetta blað, hver ham-
hleypa hann var til starfa þegar stór
verkefni kröfðust skjótrar úrlausnar.
Svavar Ottesen og Kristján Krist-
jánsson prentarar settu blaðið og
brutu það um en Jakob V. Emilsson
prentaði það í nýkeyptu Duplex-
pressunni, að viðstöddum prúðbún-
um gestum úr fjölskylduveislu
Sigurðar prentsmiðjustjóra, sem
komnir voru til að sjá Dags-press-
una.
- Viltu nefna tvö eða þrjú
barátturnál Dags frá gamalli
tíð?
Fyrst vil ég nefna, að Dagur varð í
minni ritstjórnartíð eina stjórnmála-
blaðið hér á landi, sem tók hreina og
afdráttarlausa afstöðu gegn áfeng-
isneyslunni og bauð bindindismönn-
um þar rúm eftir þörfum.
Verksmiðju vantaði á Akureyri til
niðurlagningar matvæla, en nokkur
og dýrmæt reynsla í þeirri grein lá
þegar fyrir, en vantaði að segja mátti
herslumuninn. Dagur birti þá grein-
ar um málið, til að skýra nauðsyn á
stuðningi samfélagsins við það.
Friðjón Skarphéðinsson tók málið
upp á Alþingi og með stuðningi hans
komst það í höfn. Niðursuðuverk-
smiðja K. Jónssonar & Co. hefur
lengi veitt ijölda manns atvinnu, sem
kunnugt er og er umtalsverður þátt-
ur atvinnulífsins á Akureyri.
Þriðja málefnið sem ég vil nefna er
stálskipasmíðin á Akureyri. Ég fékk
áhugamenn úr stétt járniðnaðar-
Laxárdeilan varð hitamál um land allt í ritstjórnartíð Erlings, „og fá mál hafa fætt af
sér jafn margar ályktanir félaga og samtaka og hún gerði“.
Útlit blaðsins hefur tekið talsverðum breytingum í gegnum tíðina eins og sjá má. Þessi
mynd var tekin árið 1978.
manna til að hefja máls á möguleik-
um stálskipasmíða og man ég að
ónefndum og ágætum þingmanni
Framsóknar þótti óþarft að leita til
pólitískra andstæðinga til að vitna í
máli þessu! En skoðanir þessara
manna vöktu án efa áhuga og mörg
samverkandi öfl og framkvæmda-
menn tóku málið síðan í sínar hend-
ur og stálskipasmíðar hófust 1965.
Slippstöðin hf. með hundruð
starfsmanna er öflug skipasmíðastöð
og einkar mikilvæg fyrir allt atvinnu-
líf í höfuðstað Norðurlands.
- Þú stóðst með bœndum í
Laxárdeilunni margfrœgu.
Laxárdeilan margfræga stóð á
milli Laxárvirkjunarstjórnar á Akur-
eyri og bænda við Laxá og Mývatn.
Laxárvirkjun við Brúar í Aðaldal var
þá búin að mala gull fyrir norðlenska
bæi og byggðir, en það vantaði meiri
raforku og athuganir sýndu að fram-
haldsvirkjun í Laxá, svonefnd Gljúf-
Dagur 70 ára
9