Dagur - 12.02.1988, Side 22
Sauðárkrókur.
Kveðja jrá SauðárkróM
Um þessar mundir er dagblaðið Dag-
ur á Akureyri 70 ára. Á þeim árum,
sem liðin eru síðan Degi var breytt í
dagblað, hefur hann náð verulegri
útbreiðslu, að minnsta kosti um allt
Norðurland. Og ekki að ástæðulausu.
Blaðið hefur haldið uppi góðri og
ijölbreyttri fréttaþjónustu af öllu
Norðurlandi. Það er óhætt að full-
yrða, að Dagur birtir meira efni frá
Sauðárkróki en öll dagblöðin í
Reykjavík til samans. Og annað. Það
vill gjarnan brenna við að það séu
fyrst og fremst slæmar fréttir sem
birtast í dagblöðunum. Þarna finnst
mér munur á Degi og Reykjavíkur-
blöðunum. Dagur birtir meira af
jákvæðum fréttum.
Á síðustu árum hefur aftur hallað
á landsbyggðina gagnvart höfuð-
borgarsvæðinu og fólksflóttinn er
hafmn þangað á ný. Útgáfa Dags ætti
að verða okkur fordæmi um að ekki
þarf allt að sækja til Reykjavíkur.
Dagur hefur einfaldlega sinnt
málefnum Norðurlands til muna bet-
ur en Reykjavíkurblöðin.
Jafnframt því að óska Degi og
starfsmönnum blaðsins til hamingju
með sjötíu ára afmælið vil ég láta þá
ósk í ljósi að Dagur megi vaxa og
dafna og sinna áfram hlutverki sínu
sem gott fréttablað og málsvari
landsbyggðarinnar.
Snorri Björn Sigurðsson,
bœjarstjóri.
*•••••• •••%•• ••••••• #•%••••••••••*••• ••%••*
»•*•*••••%•••••%•••'%•••••••••••'••^••••* •••
Nýr kaupfélags-
sljóri
Dagur 19. júlí 1923:
Vilhj. Þ. Þór tekur við stjórn Kf.
Eyf. af Sigurði Kristinssyni og
fer með hana í umboði Sigurð-
ar til næstu áramóta. Enginn
vafi er á því, að hann verður
kjörinn til starfsins framvegis,
ef hann gefur kost á sér. Drjúg
meðmæli hefir hann, þar sem
er traust Sigurðar.
Kýrfóður
af töðu
Það er ekki ný bóla, að bitist sé
um þær krónur, sem menn vilja
ávaxta, og góð boð í þeim efn-
um þekktust löngu áður en
verðbréfasalar og ávöxtunar-
félög komu til sögunnar. í Degi
8. okt. 1925 mátti líta þessa
auglýsingu:
„Peningalán
Sá, er getur lánað þrjú þúsund
krónur gegn góðri tryggingu,
getur fengið á næstu árum kýr-
fóður af töðu árlega með mjög
lágu verði.
Upplýsingar gefur
Vilhjálmur Þór.“
22
Dagur 70 ára