Dagur - 12.02.1988, Qupperneq 24
Ajmœliskveðja
tU Dags
Okkur Tímamönnum er mikil ánægja
að senda Degi heillaóskir á 70 ára
afmælinu.
Tíminn og Dagur urðu til á svipuð-
um tíma við sams konar aðstæður,
og er aðeins árið á milli þeirra. Því
eru Dagur og Tíminn eins og bræður
á líkum aldri.
Milli Tímans og Dags hafa því ætíð
verið sterk tengsl hugsjóna og
bræðralags auk persónulegra
sambanda sem tengjast nöfnum til-
tekinna mahna, sem lagt hafa báð-
um blöðunum lið og sett á þau svip
sinn.
Dagur er fyrsta dagblað sem gefið
er út utan Reykjavíkur. Því er Dagur
brautryðjandi að þessu leyti, skipar
heiðurssess, sem enginn á nema
hann einn.
Vöxtur Dags og viðgangur í 70 ár
má vera Dagsmönnum mikið fagn-
aðarefni, en er jafnframt dæmi um
afrek í sögu íslenskra blaða, sem öll-
um er skylt að veita athygli og viður-
kenningu.
Tímanum er sæmd að eiga slíkt
blað að bróður.
Indriði G. Þorsteinsson.
Ingvar Gíslason.
Frá Húsavík.
Dagur
Á 70 ára afmæli Dags á Akureyri er
ekki úr vegi að minna á sérstöðu
hans, en hann er eina dagblaðið sem
gefið er út utan Reykjavíkur og er
hann því rétt nefndur norðlenskt
landsbyggðarblað.
70 ára
Til þessa þroska hefur Dagur að
mestu leyti komist síðan útgáfuformi
hans var breytt í dagblað, en fram til
þess tíma var hann akureyrskt viku-
blað með mun minni útbreiðslu en
nú er.
Þetta er ágætur árangur sem náðst
hefur og þróun síðustu ára lofar
góðu um framhaldið.
Ég vil á þessum tímamótum óska
aðstandendum Dags til hamingju
með afmælisbarnið og láta í ljós þá
von að hann eigi langa og farsæla
fréttaævi fyrir höndum og flytji á
hverjum degi framtíðarinnar mikið
af góðum norðlenskum fréttum, sem
nái til sem flestra landsmanna og
auki hróður norðlenskra byggða.
Til hamingju með daginn!
Bjarni Þór Einarsson
bœjarstjóri.
Dagur 70 ára
Sendum Degi hjartanlegar hamingjuóskir á merkum tímamót-
um. Þökkum heilladrjúgt samstarf og ómetanlegan stuðning í
gegnum tíðina.
Kjördœmissamband framsóknarmanna
í Norðurlandskjördœmi eystra.
24
Dagur 70 ára