Dagur - 12.02.1988, Page 25
Ritstjórar Dags frá upphafi
Ingimar Jónatansson Eydal var
ritstjóri Dags fyrstu tvö œviár
blaðsins og síðan aftur 1927 til
1945.
Ingimar Eydal fœddist að Stekkj-
arflötum í Saurbœjarhreppi 7. apríl
1873, sonur hjónanna Sigríðar
Jóhannesdóttur og Jónatans Jóns-
sonar, er þar bjuggu. Hann lauk
prófi frá Möðruvallaskóla 1895 og
tíu árum síðar stundaði hann einn
vetur nám við lýðháskólann íAskov.
Strax eftir nám sitt í Möðruvalla-
skóla tók hann að stunda kennslu í
sveitum Eyjafjarðar og 1908 varð
hann kennari við Barnaskóla Akur-
eyrar og starfaði þar samfellt í 30
ár, þar af einn vetur settur skóla-
stjóri. Samhliða kennslunni sinnti
hann fjölmörgum aukastörfum, auk
ritstjórnar Dags. Hann var ritstjóri
íslendings 1915-17, sat í stjórn
Kaupfélags Eyfirðinga 1917-51, í
bœjarstjórn Akureyrar í 17 ár og
forseti hennar mörg ár. Sinnti leik-
list á yngri árum, og fleira mœtti
telja. - Kona hans var Guðfinna
Jónsdóttir - Ingimar lést 26. des-
ember 1959.
Jónas Þorbergsson var ritstjóri
Dags 1920-27.
Jónas fœddist að Helgastóðum í
Reykjadal 22. janúar 1885. Sonur
hjónanna Þóru Hálfdánardóttur og
Þorbergs Hallgrímssonar. Lauk
gagnfrœðaprófi á Akureyri 1909.
Eftir það fluttist Jónas um skeið til
Vesturheims og stundaði þar ýmis
störf til ársins 1916, en fluttist þá
aftur heim í Þingeyjarsýslu. Eftir að
hann lét af ritstjórn Dags varð hann
ritstjóri Tímans 1927-30, en þá varð
hann fyrsti útvarpsstjóri hins
nýstofnaða Ríkisútvarps á íslandi.
Því starfi gegndi hann til 22. janúar
1953. Jafnframt sat hann eitt kjör-
tímabil, 1931-33, á Alþingi sem
þingmaður Dalamanna. Eftir að Jón-
as lét af stórfum sem útvarpsstjóri
fékkst hann við ýmis störf og skrifaði
m.a. nokkrar bœkur. - Fyrri kona
Jónasar, Þorbjörg Jónsdóttir, varð
berklunum að bráð eftir stutta
sambúð þeirra. Síðari kona hans var
Sigurlaug Jónasdóttir.
Þórólfur Sigurðsson var ritsljóri
Dags veturinn 1927-28.
Þórólfur fœddist í Baldursheimi í
Mývatnssveit 6. maí 1886, sonur
hjónanna Solveigar Pétursdóttur og
Sigurðar Jónssonar. Hann varð
gagnfrœðingur frá Akureyrarskóla
1909. Tók við búi í Baldursheimi
1911 og stundaði búskap þar með
móður sinni allt til dauðadags, 14.
júní 1940. Jafnframt búskapnum
stundaði hann ýmis önnur störf
heima og heiman. Hann stofnaði
tímaritið Rétt 1915 og var ritstjóri
þess og útgefandi í 10 ár. Var einn af
stofnendum Tímans og Framsóknar-
flokksins og ritstýrði Tímanum
löngum, þegar Tryggvi Þórhallsson
var bundinn við önnur störf. Var um
skeið þingritari á vetrum og átti
mjög lengi sœti í miðstjórn Fram-
sóknarflokksins og gegndi fyrir hann
fleiri störfum en hér hafa verið talin.
- Tveimur árum fyrir andlát sitt
kvœntist Þórólfur Hólmfríði
Hemmert, kennara.
Dagur 70 ára
25