Dagur - 12.02.1988, Síða 26
Jóhann Guðmundsson Frímann
var ritstjóri Dags 1942-44
ásaml þeim Ingimar Egdal og
Hauki Snorrasgni.
Jóhann Frímann fœddist 27. nóv.
1906 að Hvammi í Langadal. For-
eldrar hans voru hjónin Valgerður
Guðmundsdóttir og Guðmundur
Frímann Björnsson. Lauk prófi frá
Gagnfræðaskólanum á Akureyri
1932 og stundaði síðan nám við Lýð-
háskólann í Askov 1925-27. Var
kennari við Iðnskólann á Akureyri
1927-28 og skólastjóri 1928-39 og
1942-55. Skólastjóri Héraðsskólans
í Reykholti 1939-41. Jafnframt
skólastjórn Iðnskólans kenndi
Jóhann lengst af við Gagnfrœða-
skóla Akureyrar og var síðan skóla-
stjóri hans 1955-64. Hann sat í
bœjarstjórn Akureyrar frá 1934 til
1939. Kona hans var Sigurjóna Páls-
dóttir. — Hin síðari ár œvinnar hefur
Jóhann átt við vanheilsu að stríða.
Haukur Snorrason var ritstjóri
Dags frá l.janúar 1945 til árs-
loka 1955, en hafði áður starfað
við blaðiðfrá ársbgrjun 1942.
Haukur var fœddur á Flateyri við
Önundarjjörð 1. júlí 1916, sonur
hjónanna Guðrúnar Jóhannesdóttur
og Snorra Sigfússonar skólastjóra.
Til Akureyrar Jluttist hann 1930.
Lauk gagnfrœðaprófi á Akureyri og
stundaði síðan um skeið nám í Eng-
landi. Varð að því búnu starfsmaður
Kaupfélags Eyfirðinga. Var aðstoð-
armaður Vilhjálms Þórs við að koma
upp Islatidsdeild Heimssýningarinn-
ar íNew York 1939. Gerðist aðstoð-
arritstjóri Dags 1942 og tók að fullu
við ritstjórninni 1945. Var jafnframt
ritstjóri Samvinnunnar 1947 til
1950. Ritstjóri Tímans frá upphafi
árs 1956 til dánardœgurs, 10. maí
1958. Átti sœti í Menntamálaráði
frá 1954 og gegndi fleiri trúnaðar-
störfum. Kona hans var Else Frið-
finnsson.
Erlingur Davíðsson var ritstjóri
Dags frá upphafi ársins 1956 til
ársloka 1979 eða samflegtt í 24
ár.
Erlingur Davíðsson fœddist 11.
apríl 1912 að Stóru-Hámundarstöð-
um á Árskógsströnd, sonur hjón-
anna Maríu Jónsdóttur og Davíðs
Sigurðssonar. Hann stundaði nám í
Laugaskóla, varð búfrœðingur frá
Hvanneyri og stundaði ennfremur
nám í Garðyrkjuskólanum við Hvera-
gerði. Að námi loknu var hann um
skeið bryti við Laugaskóla, en réðist
síðan í þjónustu KEA og veitti for-
stöðu kornræktarbúskap að Klauf í
Eyjafirði og síðan rekstri gróður-
húsa að Brúnalaug. Við þessi störf
var hann um 11 ára skeið. Eftir það
hófust störf hans hjá Degi. Nokkrum
árum áður en hann hœtti ritstjórn-
inni hóf hann útgáfu safnritsins
Aldnir hafa orðið, og eftir að löngum
ritstjóraferli lauk hefur hann alfarið
helgað sig ritstörfum og sent frá sér
mikinn fjölda bóka, bœði safnrita og
frumsaminna verka. Þá er hann nú
formaður Félags aldraðra á Akur-
eyri. KonaErlings er Katrín Kristjáns-
dóttir.
26
Dagur 70 ára