Dagur - 12.02.1988, Page 32
teygja fyrirsögn yflr þvera síðu. Sam-
tímamönnum Matthíasar hefur verið
það ljóst, að þeir voru að kveðja stór-
skáld og mikilmenni.
Eins og áður segir, tóku almennar
fréttir ekki ýkja mikið rúm í blaðinu
á þessum tíma. Stuttar fréttir frá
Akureyri voru þó yfirleitt í hverju
blaði og oftast var birt símskeyti frá
Reykjavík, þar sem var að íinna er-
lendar fréttir og fréttir úr Reykjavík í
mjög samanþjöppuðu formi. En rit-
stjóranum finnst skorta fréttir úr
sveitunum, og hefur nokkrum sinn-
um orð á því. En þess ber að gæta, að
á þessum tíma bjó enn yfirgnæfandi
meirihluti þjóðarinnar í sveitum
landsins.
12. nóv. 1921 er fjallað um þýð-
ingu þess, að fá fréttir úr sveitunum,
og segir m.a.:
„Án slíkrar aðstoðar ná blöðin ekki
þeim tilgangi sínum að verða fræð-
andi fyrir alla alþýðu um innanlands
atburði og málefni. Þau geta aldrei
án þess vitað hvernig þjóðinni vegn-
ar í raun og veru. I sveitunum býr
kjarni þjóðarinnar. Þar hreyfast þær
undiröldur, þar er sá aflvaki, sem
hrindir stórum málum upp á yfir-
borðið. Þar vaxa upp margir þeir
menn sem síðar taka mál þjóðarinn-
ar í sínar hendur...
Nú eru það enn að nýju einlæg og
mjög ákveðin tilmæli blaðsins, að
lesendur þess víðs vegar sendi því
fréttabréf. I þeim bréfum má tfna til
það helsta um veðráttu, heyfeng,
beitijörð, búQárhöld, aflabrögð,
nýjungar og framfarir í búskap,
félagsskap, íþróttir og hvers konar
menningarviðleitni, slysfarir, dauðs-
föll, giftingar, trúlofanir o.fl. o.fl.
Æskilegt væri að þeir, sem tækju
að sér fréttaritun fyrir blaðið, temdu
sér stutta, samanþjappaða frásögn,
en skýra. Gæti það um leið orðið
þeim hinum sömu, æfing nokkurs
verð. Og blaðið endurtekur spurn-
inguna: HVAÐ ER AÐ FRÉTTA?"
í upphafi var Dagur prentaður í
Prentsmiðju Björns Jónssonar á
Akureyri, en um áramótin 1920-’21
flutti blaðið sig um set og Oddur
Björnsson prentmeistari tók að sér
að annast prentun þess. Stóð þá jafn-
an neðst á einhverri síðu blaðsins:
Ritstjóri: Jónas Þorbergsson. Prent-
ari: Oddur Björnsson. En í blaðinu
18. maí 1922 er frá því skýrt, að
Oddur Björnsson prentmeistari hafi
selt prentsmiðju sína þeim Sigurði
syni sínum og Ingólfi Jónssyni stud.
jur. Þess er jafnframt getið, að Oddur
hyggist flytja úr bænum, og í blaðið
24. maí skrifaði ritstjórinn mjög vin-
samleg kveðju- og þakkarorð, þar
Lengst af var Dagur settur og prentaður í
Hér sést Svavar Ottesen vélsetjari við iðju
ingar í blaðið. Myndin er frá 1958.
Konunglegur
enibættis-
maður
Fréttir Dags 14. febrúar
1924:
„Alþingi kemur saman á
morgun. Esja smalaði saman
þingmönnunum frá Hornafirði
norður og vestur um land.
Katrín Thoroddsen cand. med.
& chir. hefir fengið veitingu fyr-
ir Flateyjarlæknishéraði. Hún
er dóttir Skúla Thoroddsens.
Hún útskrifaðist úr háskólan-
um árið 1921 og hefir dvalið
erlendis síðan. Hún er fyrsta
konan sem verður konunglegur
embættismaður á landi hér.“
Prentverki Odds Björnssonar á Akureyri.
sína, en hann setti fyrirsagnir og auglýs-
sem einnig er lauslega greint frá
störfum Odds um dagana. Og síðan
stendur neðst á síðu: Ritstjóri: Jónas
Þorbergsson. Prentsmiðja Odds
Björnssonar.
Myndir voru ekki algengar í
blöðum, síst utan Reykjavíkur, á
bernskuárum Dags. Þó fór nokkuð
snemma að bregða fyrir teiknuðum
myndum (strikamyndum) í einstöku
auglýsingu. En myndir með almennu
lesmáli blaðsins voru óþekkt fyrir-
bæri fyrstu árin.
I október 1923 voru kosningar í
aðsigi og ritstjórinn skrifar langa
grein um Björn Líndal lögmann
„frambjóðanda Akureyrarkaup-
manna“. Með greininni fylgdi teikn-
uð skopmynd, sem sýnir tvo
prúðbúna menn sitja sitt hvorum
megin við tunnu og lyfta glösum, en á
tunnunni stendur flaska. Yfir mynd-
inni stendur innan gæsalappa „Síld
og samvinna". Þetta mun vera fyrsta
myndin, sem birtist með grein í Degi.
En 30. október 1924 gat að líta á
forsíðu Dags mynd af Kristínu Sig-
fúsdóttur skáldi og húsfreyju í Kálfa-
gerði. Myndin fylgdi umsögn um bók
hennar „Sögur úr sveitinni". Þarna
var komin fyrsta myndin, prentuð eft-
ir ljósmynd.
27. nóvember sama ár birti blaðið
ítarlega frásögn af Klæðaverksmiðj-
unni Gefjuni 17 ára og var tveggja
dálka mynd af verksmiðjuhúsinu á
32
Dagur 70 ára