Dagur - 12.02.1988, Qupperneq 34
urðssonar, og hann annaðist rit-
stjórnina til maíloka 1928. Ekki
verður sagt að blaðið taki miklum
breytingum á ritstjórnartíma
Þórólfs, skrif þess eru áfram mjög í
þeim anda, sem fyrri ritstjóri hafði
markað. Þó er nú mun meira en áður
fjallað um það, sem er að gerast hjá
ríkisstjórn og Alþingi. Er það mjög
að vonum, því að ríkisstjórn Fram- *
sóknarflokksins er sest að völdum,
og nú gildir að láta verkin tala,
breyta draumum í veruleika. Þórólf-
ur er mjög harðskeyttur baráttumað-
ur fyrir Framsóknarflokkinn og hina
nýju ríkisstjórn og lætur andstæðing-
ana síst af öllu eiga nokkuð hjá sér.
Ljóst er af öllum skrifum Þórólfs, að
hann hefur haft mjög víðtæka þekk-
ingu á landsmálum og brennandi
áhuga á þeirri nýsköpun, sem hafin
var í landinu. En bóndinn hlaut að
hverfa aftur að búi sínu, og 7. júní
1928 verða enn ritstjóraskipti.
Ingimar kemur aftur
Þegar Þórólfur kvaddi Dag og hélt
aftur til síns heima í Mývatnssveit,
tók fyrsti ritstjóri blaðsins, Ingimar
Eydal, aftur við ritstjórninni og hafði
hana með höndum, ýmist einn eða
með aðstoð annarra, allt til ársins
1945.
Ingimar hélt áfram starfi sínu sem
kennari lengi eftir að hann tók við
ritstjórninni, eða til ársins 1939. Rit-
stjórnin var því aukastarf hjá
honum, sem hann samt sem áður
sinnti af miklum áhuga og alúð. En
eðlilega leitaði hann eftir aðstoð
annarra, einkum félaga og kunn-
ingja í kennarastétt. Hann hefur
augljóslega einnig lagt sig fram um
að fá menn til að birta greinar um
ýmisleg hugðarefni sín og þannig
aukið á fjölbreytni blaðsins.
Heildarsvipur blaðsins breytist
ekki mikið fyrst eftir að Ingimar tek-
ur aftur við og skrif ritstjórans eru
mjög í sama anda og áður hjá þeim
Jónasi og Þórólfi, en fleiri koma nú
við sögu, þannig að það er ekki eins
stór hluti blaðsins, sem er skrifaður
af einum og sama manninum.
í lok greinar um blaðið og stöðu
þess, sem Ingimar birtir 7. júní
1928, þegar hann tekur við, segir:
„Hlutverk Dags er að hlúa að
gróðrinum í íslensku þjóðlífi og
vinna í samræmi við vaxtarmögu-
leika þess. Einkunnarorð hans eru:
Pokum okkur saman til æ meira
samstarfs um æ fullkomnara skipu-
lag eftir eðlilegum þroskaleiðum.
Frá þessari stefnu vona ég að Dag-
ur hviki aldrei.“
Þessum einkunnarorðum, sem
hann þarna gaf blaðinu, reyndist
Ingimar trúr.
Friðrik Á. Brekkan
Þegar Ingimar Eydal kom aftur að
Degi 1928 var í upphafi aðeins samið
um að hann tæki við blaðinu til
bráðabirgða, þó að úr því teygðist.
Þegar fram á haustið var komið og
starfið í skólunum hafið, fékk hann
sér til a,ðstoðar sem meðritstjóra
Friðrik Ásmundsson Brekkan, rit-
höfund og kennara. í blaðinu 18.
október er hann boðinn velkominn
til starfa. Og nýi meðritstjórinn segir
m.a., þegar hann ávarpar lesendur:
„Dagur vill, vona ég, eins og hing-
að til vera fyrst og fremst bændablað
eins og sómir framgjörnum bændum
'í
Ein af fjölmörgum gömlum myndum í eigu Dags. Séð yfir ullarverksmiðjuna Gefjun.
í baksýn er byggðin í Glerárþorpi en eins og sjá má var hún ekki mikil á þessum tíma.
34
Dagur 70 ára