Dagur - 12.02.1988, Blaðsíða 38
c
an ófarinn veg að styðja öfluglega að
framgangi allra góðra, réttlátra og
heilbrigðra málefna og verða sterkur
Þrándur í götu alls þess, er til óheilla
horfir fyrir hina íslensku þjóð. Megi
blaðið vinna sem flesta sigra á þeirri
leið.“
Nafn Jóhanns Frímanns hverfur
nú einnig úr blaðhaus, og frá árs-
byrjun 1945 er Haukur Snorrason
einn ritstjóri blaðsins. Marinó H. Pét-
ursson tekur við afgreiðslu og inn-
heimtu.
Fréttablað verður Dagur nú mikið
og gott fyrir Akureyri og nágrenni,
og nokkuð er um almennar lands-
fréttir og talsverð þátttaka í lands-
málabaráttunni, auk ýmiss annars
efnis, einkum í föstum þáttum, sem
eykur á fjölbreytnina.
Myndir eru enn næsta fágætar, en
fer þó Qölgandi, einkum þegar kem-
ur fram á árið 1946, og fer þá að
verða sjaldgæft, að ekki sé ein mynd
á forsíðu og stundum einnig fleiri
myndir.
En fleira var á döfmni. Blaðið
ræðst í að kaupa sér prentvél.
Á baksíðu Dags 26. nóvember
1947 var mynd, sem svofelldur texti
fylgdi:
„Þannig lítur hin nýja Duplex-
hraðpressa út, og er þetta fyrsta
blaðið, sem prentað er í henni. í
þessari pressu er hægt að prenta allt
að 16 síðum í Dagsstærð í einu og
skilar vélin blaðinu brotnu og uppúr-
skornu. Afköstin geta verið best
3600 eint. á klst. Með tilkomu þess-
arar vélar eru starfsskilyrði við blað-
ið stórbætt og möguleikar þess til
stækkunar auknir.
Engin önnur breyting er þó full-
ráðin á blaðinu, önnur en sú, er hér
sést, en blaðið hefir hug á því að
fjölga útkomudögum eins fljótt og
mögulegt er.“
Jafnframt því, sem hin nýja vél var
tekin í notkun, var að miklu leyti
breytt um leturgerð, tekið upp
smærra letur en áður var. Vinnsla
blaðsins tók að sjálfsögðu skemmri
tíma en áður og varð að ýmsu þægi-
legri, m.a. það að fá blaðið brotið úr
prentvélinni, en prentunin sjálf var
því miður ekki betri en áður var.
í byrjun maímánaðar 1950 verð-
ur sú breyting á, að Marinó H. Pét-
ursson, sem annast hafði afgreiðslu,
auglýsingar og innheimtu lætur af
störfum, en við tekur Erlingur
Davíðsson. Næstsíðasta blað ársins
1951 er prentað í tveimur litum,
nafn blaðsins er rautt, svo og fyrir-
sagnir og helstu línur í auglýsingum.
Ennfremur er þetta gert í jólablaði.
Það eru mörg handtökin við útgáfu blaðs. Hér má sjá þau Guðmund Þorsteinsson og
Astu Jónu Ragnarsdóttur vinna að umbrotinu, Pál Pálsson við filmugerð og þá Sigurð
Vatnsdal og Stefán Sigurðsson við prentvélasamstæðuna.
38
Dagur 70 ára