Dagur - 12.02.1988, Page 39
Texti blaðsins tölvusettur. Frá vinstri: Jóhanna Sigurðardóttir, Árdís Antonsdóttir og
Jóhanna Norðfjörð
Ríkarður B. Jónasson og Rósa Þórey Elíasdóttir við Tdmugerð.
Ársæll Ellertsson gerir klárt fyrir prentun.
Og síðan var þetta gert við einstöku
tækifæri, blaðið skreytt með rauðu
eða grænu.
Eftir því sem árin líða fara auglýs-
ingar í blaðinu vaxandi, og stærð
þess er hagað nokkuð eftir því, hvað
íyrir liggur af lesefni og auglýsingum
og verður það æ oftar 12 síður í stað
8, og einnig eru gefin út aukablöð,
blaðið kemur reglulega á miðviku-
dögum, en einnig af og til á laugar-
dögum. 1953 urðu tölublöðin 65, en
annars um eða rétt innan við 60, og
lá þó útgáfa yfirleitt niðri í þrjár vik-
ur vegna sumarleyfa.
Haukur Snorrason var víkingur til
verka, hugmyndaríkur og metnaðar-
fullur fyrir sitt málgagn. Ekkert ein-
stakt tölublað Dags mun þó hafa vak-
ið viðlíka eftirtekt eða farið jafn víða
og aukablað, sem út kom sunnudag-
inn 24. september 1950 með frásögn
af því, þegar björgunarleiðangur frá
Akureyri sótti áhöfn millilandaílug-
vélarinnar Geysis á Vatnajökul, þar
sem vélin brotlenti að kvöldi 14. sept-
ember. Aðfaranótt 21. september
hafði öllum verið komið heilu og
höldnu niður af jöklinum og enn-
fremur áhöfn bandarískrar björgun-
arflugvélar, sem lenti hjá ílaki Geysis
en komst. ekki á loft aftur. Eftir það
héldu björgunarmenn heim til Akur-
eyrar. Ritstjóri Dags var þátttakandi
í björgunarleiðangrinum, og þegar
hann kom heim eftir harla lítinn
svefn en mikið erfiði sólarhringum
saman, settist hann við ritvélina og
skrifaði frásögn af leiðangrinum,
sem með myndum tók yfir nærri sjö
síður í Degi. Myndirnar hafði Eðvarð
Sigurgeirsson tekið, en hann var
einnig þátttakandi í leiðangri
þessum. Aðrir blaðamenn eða ljós-
myndarar komu þar ekki við sögu,
og hafa víst margir öfundað þá Hauk
og Eðvarð fyrir að vera einir um hit-
una, þar sem atburðir, er vöktu
heimsathygli voru að gerast.
En nú kemur þar sögu, að öðru
sinni er ritstjóri Dags til þess kvadd-
ur að flytja til Reykjavíkur og taka að
sér ritstjórn aðalmálgagns Fram-
sóknarflokksins. í fyrsta tölublaði
ársins 1956 kveður Haukur og
útgáfustjórnin færir honum þakkir
fyrir vel unnin störf:
„I ritstjórnartíð Hauks hefur það
orð komist á Dag, að hann væri læsi-
legasta stjórnmálablað þjóðarinnar
og kaupendatala blaðsins varð meiri
en nokkru sinni fyrr.“
Við ritstjórn Dags tekur nú Erling-
ur Davíðsson, sem undanfarin ár
hafði séð um afgreiðslu blaðsins,
auglýsingar og innheimtu og jafn-
framt talsvert ritað í það og verið for-
sjármaður þess, þegar ritstjórinn var
Dagur 70 ára
39