Dagur - 12.02.1988, Qupperneq 42
Nokkrum sinnum á ritstjórnarferli
Erlings Davíðssonar voru gefin út
aukablöð, sem sérstaklega var vand-
að til, m.a. á 90 ára afmæli Kaupfélags
Eyfirðinga og 100 ára afmæli Akur-
eyrarkaupstaðar, og 1968 var gefið
út myndarlegt afmælisblað, er Dagur
varð 50 ára, þar skrifaði Bernharð
Stefánsson um ritstjóra blaðsins frá
upphafi og Gísli Guðmundsson rakti
sögu blaðsins í stórum dráttum.
Ennfremur er þar að finna ágætar
greinar eftir ritstjórann og fleiri. Og
árin líða án sérstakra tíðinda eða
tímamóta í sögu blaðsins, en á árinu
1976 fer að kvisast, að ýmsar breyt-
ingar kunni að vera á næsta leiti.
19. janúar 1977 skýrir blaðið frá
því, að verið sé að flytja prentsmiðj-
una, Prentverk Odds Björnssonar, í
nýtt og glæsilegt hús við Tryggva-
braut, en áður hafði prentsmiðjan
um langan tíma verið í Hafnarstræti
88, en Dagur hafði aðsetur sitt í
næsta húsi, Hafnarstræti 90, elsta
verslunarhúsi Kaupfélags Eyfirð-
inga.
Jafnframt er frá því sagt, að ný
offset-prentvél, sem Dagur hefur fest
kaup á, verði sett niður í hinum nýju
húsakynnum POB.
Og þann 16. febrúar kemur fyrsta
tölublaðið af Degi prentað í hinni
nýju offset-vél blaðsins, en aðrar
vélar, sem þurfti til undirbúnings
offset-prentuninni hefur Prentverkið
keypt. Og af þessu
tilefni segir blaðið
m.a.:
„Stækkun blaðs-
ins eða aukinn
fjöldi tölublaða er
á dagskrá og hafa
lengi verið. Upp-
lagið er nú hálft
sjötta þúsund og
vex hægt en stöð-
ugt, án þess að
sérstakar ráðstaf-
anir hafi verið
gerðar til þess að
fjölga kaupendum.
Ljóst er, að blaðið
getur ekki annað
því Qölþætta hlut-
verki, sem því er
ætlað og nauðsyn-
legt má teljast af
útbreiddu blaði,
nema það sé
stækkað eða tölu-
blöðum fjölgað. En
Qárhagurinn verð-
ur að ráða þeirri
þróun.“
Talsverðar breyt-
ingar verða nú á
útliti blaðsins, letri
og uppsetningu, og prentunin er til
mikilla muna betri en áður var. Þess
er nú á nýjan leik getið í blaðhaus, að
útgefandinn sé Útgáfufélag Dags, en
um langt árabil hafði það ekkert
komið fram í blaðinu, hver útgefand-
inn væri. í reynd munu það hafa ver-
ið framsóknarfélögin á Akureyri og í
Eyjafjarðarsýslu, sem báru ábyrgð á
útgáfunni mikið á Qórða áratug.
Árið 1976 var litprentuð kápa utan
um síðasta tölublað ársins, prentuð í
annarri prentvél en meginefni blaðs-
ins. Á forsíðu var glæsileg, litprentuð
mynd, sem m.a. sýnir Akureyrar-
kirkju, Hótel KEA og aðalverslunar-
hús kaupfélagsins. Sami háttur var
hafður á 1978. Það er auðsjáanlega
farið að kitla umsjónarmenn blaðs-
ins að geta gripið til litprentunar og
fegrað útlitið.
Og nú fœrist fjör í leikinn
Forustugrein Dags 8. febrúar 1978,
rétt þegar er að koma að sextugsaf-
mælinu, heitir „Nýr áfangi“. Þar
kemur fram, að ýmislegt er að gerast
hjá blaðinu, og skulu hér teknar upp
nokkrar setningar úr greininni:
„Fyrirhugað er nú að auka útgáfu
Dags og gefa hann út tvisvar í viku
fyrst um sinn a.m.k.“
„fnnan skamms flytur Dagur í eig-
ið húsnæði, að Tryggvabraut 12, efri
Gömul réttarstemmning. Aldur myndar óviss.
hæð, sem hefur verið smekklega inn-
réttuð og á að auðvelda alla vinnu.
Er það í fyrsta sinn á sextíu ára
göngu Dags, að hann eignast þak yfir
höfuðið."
„Til starfa er tekinn hjá Degi nýr
blaðamaður og ráðin er stúlka til
ýmiss konar skrifstofustarfa, svo
sem símavörslu og vélritunar."
Einnig er ijallað um hina nýju
tækni í prentiðnaði, tölvusetningu og
offsetprentun, og svo um það hverja
þýðingu stækkun blaðsins hafu
„í fyrsta lagi verður blaðið nú
meira og betra fréttablað. í öðru lagi
getur það betur sinnt þeim félags-
legu og mannlegu samskiptum, sem
nauðsynleg eru og blaðið getur greitt
fyrir. I þriðja lagi verður nú meira
rúm fyrir hið pólitíska svið og þykir
mörgum það nauðsynlegt, einkum á
kosningaári. í íjórða lagi verður
blaðið, sem ætíð áður, opinn vett-
vangur til sóknar og varnar í málefn-
um Qórðungsins og á að geta rækt
það hlutverk betur en áður vegna
aukinnar útgáfu, og er þar jöfnum
höndum átt við framfara- og
menningarmál, hverju nafni sem
nefnist."
Blaðið 17. febrúar er sérstaklega
helgað afmæli blaðsins, og í kveðju
blaðstjórnar, sem formaður hennar,
Valur Arnþórsson, undirritar, kemur
fram, að flutt hafi verið í hið nýja
húsnæði við Tryggvabrautina á
afmælisdaginn, 12.
febrúar. Einnig
kemur þar fram,
að Dagur hafi jafn
mikla útbreiðslu á
Akureyri sem tvö
stærstu sunnan-
blöðin samanlagt.
Ýmsir fleiri en
blaðstjórnin senda
Degi og starfs-
mönnum hans af-
mæliskveðjur, en
ritstjórinn Erling-
ur Davíðsson,
minnist sérstak-
lega ijölmargra
fréttaritara blaðs-
ins í nálægum hér-
uðum, „sem sýnt
hafa blaðinu það
drengskaparbragð,
allir með tölu, að
vinna að fréttaöfl-
un ókeypis“. Eipn-
ig minnist hann
þeirra starfs-
manna, sem vinna
við pökkun og
dreifingu blaðsins,
en ekki er að jafn-
aði getið á síðum
42
Dagur 70 ára