Dagur - 12.02.1988, Síða 43
þess. Öllu þessu fólki færir Erlingur
þakkir sínar og blaðsins.
„Hugsjónir rætast“ nefnir Stefán
Valgeirsson kveðju sína í afmælis-
blaðinu, og segir m.a.:
„Og nú hefur Dagur þjónað sam-
vinnumönnum í sex áratugi og er
þess albúinn að heija nýja sókn til
eflingar norðlenskum byggðum.
Hann var og er rödd byggðanna,
málsvari uppbyggingar og eflingar
landsins alls.
Hann mun hér eftir sem hingað til,
hvetja til samvinnu og samhjálpar,
jöfnunar launa og lífsaðstöðu.
Hann hefur ætíð verið reiðubúinn
að veita öllum góðum málum lið eftir
megni, en gagnrýnt það, sem miður
hefur farið og ámælisvert er.
Og nú er Dagur að flytja í nýtt
húsnæði, þar sem starfsmönnum eru
búin betri starfsskilyrði en áður. Um
leið og ég óska þeim velfarnaðar í
störfum vil ég þakka gott og ánægju-
legt samstarf á liðnum árum með
þeirri ósk, að ekki líði mörg ár þang-
að til Dagur verður dagblað, hið
fyrsta á Norðurlandi, til að halda enn
hærra á lofti merki samvinnumanna
og ungmennafélaganna, sem höfðu
að kjörorði: íslandi allt.“
Svo sem áður hefur komið fram,
flutti Prentverk Odds Björnssonar
starfsemi sína í Tryggvabraut á
árinu 1977, ogþarvar offsetprentvél
Dags sett niður, það var því mjög
umhendis að hafa skrifstofur blaðs-
ins áfram inni í Hafnarstræti, og í
rökréttu framhaldi af því var hús-
næði fyrir blaðið keypt í Tryggva-
braut, og þangað flutt 12. febrúar
1978. Þá varð stutt að hlaupa á milli
höfuðstöðva blaðsins og prentsmiðj-
unnar og létt verk fyrir ungan,
nýráðinn blaðamann, Askel Þóris-
son. En einmitt þegar Áskell er
ráðinn, er fyrst talað um blaðamann
hjá Degi. Til þess tíma hafði það ver-
ið aðalreglan, að einn maður (rit-
stjórinn) annaðist öll störf á skrif-
stofu blaðsins, en kæmi það fyrir, að
hann hefði fasta aðstoðarmenn,
nefndust þeir meðritstjórar eða
aðstoðarritstjórar.
Árið 1978 líður, og það ár kom
Dagur út í 81 skipti, og á árinu 1979
kom blaðið 88 sinnum.
Árið 1980 heilsar, og þá verða rit-
stjóraskipti. Erlingur Davíðsson
kveður eftir að hafa þjónað blaðinu
af miklum dugnaði og trúmennsku í
nærfellt 30 ár, þar af 24 ár sem rit-
stjóri. Hann skilar af sér góðu búi og
vaxandi blaði. Við ritstjórninni tekur
Hermann Sveinbjörnsson, ungur
lögfræðingur, sem um skeið hafði
starfað sem fréttamaður hjá Ríkisút-
varpinu.
Næstu tvö ár líða án þess að stór-
breytingar verði á útgáfu Dags. Blað-
ið kemur nokkuð reglulega tvisvar í
viku, farið er í ríkara mæli en áður
að nota fleiri liti en svart við prent-
unina til að gæða blaðið auknu lífi,
íjölbreytni í efnisvali fer vaxandi og
það gerist æ oftar, að blaðið er meira
en átta síður, oft 12 síður og stöku
sinnum meira.
En þótt ekki sjáist neinar stökk-
breytingar á blaðinu, er samt ýmis-
legt að gerast, sem bendir til þess að
stórtíðindi séu í nánd.
„Dagur festir kaup á húsi
- auglýst eftir starfsmönnum á
skrifstofu og í prentsmiðju"
Þannig var ein fyrirsögnin á forsíðu
blaðsins 7. maí 1981, og síðan gat að
lesa eftirfarandi frétt:
„Samningar hafa verið gerðir milli
Útgáfufélags Dags og eigenda
Strandgötu 31, þar sem Smjörlíkis-
gerð Ákureyrar var til húsa, um
makaskipti á þeirri eign og Tryggva-
braut 12, þar sem Dagur er nú.
Stefnt er að því að flytja skrifstofur
blaðsins í hið nýja húsnæði fyrir
haustið, þegar lokið verður innrétt-
ingum á því. Frá miðjum maí og til
þess tíma verða skrifstofur blaðsins í
Hafnarstræti 90, þar sem Dagur var
áður en hann flutti að Tryggvabraut.
Frá og með áramótum er ætlunin
að hefja rekstur prentsmiðju í húsinu
við Strandgötu, sem er samtals rösk-
lega 600 fermetrar að gólfflatarmáli. *
Verður prentvél Dags flutt þangað úr
POB og keypt nauðsynleg viðbótar-
tæki.
Pessar fjárfestingar tengjast fyrir-
hugaðri útgáfuaukningu blaðsins og
af sömu ástæðu hefur verið ráðinn
nýr blaðamaður, sem tekur til starfa
í sumar. Hann heitir Gylfi Kristjáns-
son og kemur frá Vísi. Þá er í blaðinu
í dag auglýst eftir fjórum starfs-
mönnum í prentsmiðjuna og auglýs-
ingastjóra. Einnig er í ráði að við
blaðið muni starfa sérstakur dreif-
ingarstjóri.“
Þetta þarf ekki skýringa við. Meiri
stækkun er á næsta leiti.
í blaðinu 12. nóvember eru marg-
ar myndir af „prentvél Dags á ferða-
lagi“. Verið er að flytja hana í hin
Dagsprent hf. var stofnað árið 1981, gagngert til þess að annast prentun blaðsins. í dag er Dagsprent h.f. aihliða prentsmiðja
með mikinn og góðan tækjakost, þótt Dagur sé enn viðamesta verkefnið. Þegar þessi mynd var tekin var verið að flytja prentvél
Dags, King press, úr P.O.B. í höfuðstöðvar Dags og Dagsprents hf. að Strandgötu 31, haustið 1980.
Dagur 70 ára
43