Dagur - 12.02.1988, Blaðsíða 44
nýju húsakynni við Strandgötu. Und-
ir mynd á forsíðu má lesa: „Iðnaðar-
menn hafa unnið af kappi í nýbygg-
ingu Dags við Strandgötu að undan-
förnu. Blaðið í dag er prentað í hin-
um nýju húsakynnum og um áramót
verður öll starfsemi Dags komin í
Strandgötuna.“
Fyrsta tölublað ársins 1982 kom
út 5. janúar, að öllu leyti unnið í
Strandgötu 31 í húsnæði, sem er í
eigu blaðsins og Dagsprents hf.,
hlutafélags sem stofnað hefur verið
um prentsmiðjureksturinn, en er að
meirihluta til í eigu Dags. Prentverki
Odds Björnssonar og starfsliði eru
þökkuð vel unnin störf og samvinna
um 60 ára skeið. Nýir starfsmenn
eru boðnir velkomnir til starfa og
mynd er af starfsmönnum Dags og
Dagsprents við þessi tímamót. Mikil
breyting er nú á orðin frá því einn
maður annaðist ritstjórnina í hjá-
verkum og annar sá um afgreiðslu
blaðsins, einnig í hjáverkum. Á
myndinni eru 12 manns. í blaðhaus
er getið þeirra, sem helstu ábyrgðar-
störfum gegna:
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Her-
mann Sveinbjörnsson. Blaðamenn:
Áskell Þórisson og Gylfi Kristjáns-
son. Auglýsingastjóri: Frímann Frí-
mannsson. Útbreiðslustjóri: Jóhann-
es Mikaelsson. Framkvæmdastjóri:
Jóhann Karl Sigurðsson.
í reynd hefur Jóhann Karl lengi
verið framkvæmdastjóri blaðsins,
enda þótt þar hafi þess aðeins verið
getið, að hann sæi um afgreiðslu og
auglýsingar. Á honum hefur hvílt
mikið starf við þær breytingar og
uppbyggingu, sem orðið hefur síð-
ustu árin.
Og nú kemur Dagur út þrisvar í
viku, á þriðjudögum, funmtudögum
og föstudögum. Enda þótt blaðið sé
enn ekki orðið dagblað, hefur það
fengið á sig allan svip dagblaðs. Áuk
þess sem fastir starfsmenn skrifa
blaðið annast og lausráðnir menn
ýmsa þætti, og þeir, sem áhuga hafa
fyrir að koma skoðunum sínum um
einstök málefni á framfæri, leita í
vaxandi mæli til Dags, enda hefur
mjög dregið úr annarri blaðaútgáfu í
bænum, þegar hér er komið sögu.
Önnur bæjarblöð veita ekki lengur
neina samkeppni, miklu fremur er
nú komin til sögu samkeppni við
dagblöðin í Reykjavík.
Á árinu 1982 urðu tölublöð Dags
142, út komu 144 tölublöð 1983 og
130 urðu þau 1984. í maí 1983 er
útgáfudögum breytt í mánudaga,
miðvikudaga og fóstudaga. Blaða-
mönnum fer fjölgandi, m.a. er farið
að ráða blaðamenn með aðsetur
utan Akureyrar (Húsavík, Sauðár-
Hvað auglýsti KEA?
Kaupfélag Eyfirðinga auglýsti ekki mikið í Degi á
fyrstu árum blaðsins. Þó mátti oftast sjá ein-
hverja auglýsingu frá því í hverju blaði, en það!
var nokkuð annað, sem þá var lögð áhersla á aðj
auglýsa en nú er. Hér eru nokkur sýnishorn:
115. janúar 1919:
„Áraplankar fást í Kaupfélagi Eyfirð-
inga. “
1 22. janúar 1919:
,,Suðuspritt fœst í Kjötbúðinni.
29. janúar 1919:
,Skilvindur fást í Kaupfélagsverslun
\ Eyfirðinga. “
26. mars 1919:
„Blásteinn fœst í Kaupfélagi Eyfirðinga. “
16. apríl 1919:
„Járnspaðar, skóflur, heykvíslar og
undirristuspaðar fást í Kaupfélagi
s Eyfirðinga. “
21. maí 1919:
„Skósverta á 35-75 au. dós og ofn-
sverta á 25 aura dósin fœst í Kaupfé-
lagi Eyfirðinga. “
18.júníl919:
,Diabolo strokkar og skilvindur fást í
K.E. “
I. október 1925:
„Stúfarnir marg eftirspurðu komnir
aftur í Kaupfélag Eyfirðinga. “
16. júlí 1923:
„Ágœtt sólaleður er komið aftur. Sent
út um land gegn póstkröfu ef óskað er.
Kaupfélag Eyftrðinga. “
31. janúar 1924:
„Toppsykur í Kaupfélagi Eyfirðinga. “
II. júní 1925:
„Hafið þér athugað að vér seljum stúfa
á 13 kr. kílóið? Kaupfélag Eyfirðinga. “
inga.
44
Dagur 70 ára