Dagur - 12.02.1988, Side 45
króki). Breytingar verða líka smám
saman á blaðamannahópnum, sum-
ir hverfa til annarra starfa, aðrir
koma í staðinn. Yrði það of langt mál
upp að telja. í mars 1983 er fyrst
skráður sérstakur fréttastjóri. Sá
heitir Gísli Sigurgeirsson. 1. júlí
sama ár tekur Hafdís Freyja Rögn-
valdsdóttir við starfl útbreiðslu-
stjóra. Fréttastjóranafnið stóð stutt
við og öðlaðist Gísli eftir það titilinn
ritstjórnarfulltrúi.
Dagblaðið Dagur
Þann 26 september 1985 er svo
stóra stökkið tekið. Á forsíðu stendur
stórum stöfum: VIÐ VERÐUM DAG-
BLAÐ. Blaðið er 16 síður og í opnu
er greinarstúfur, merktur Gísla
Sigurgeirssyni, þar sem því er lýst,
hvernig blað verður til. Með
fylgja margar myndir frá rit-
stjórnarskrifstofu og úr
prentsmiðju. Á forsíðu er
mynd frá ritstjórnarfundi.
Inni í blaðinu er ávarp frá
formanni blaðstjórnar, Vali
Arnjaórssyni, og þar segir:
„í dag er brotið blað í sögu
dreifbýlisins. Þetta blað er
brotið með því að Dagur
verður að dagblaði, hinu
fyrsta í dreifbýlinu, sem
eitthvað kveður að. Þetta fel-
ur í sér merkt framfaraspor
fyrir alla þá sem unna sam-
vinnuhugsjón, jafnrétti og
bræðralagi, jafnvægi í byggð
landsins og hafa áhuga á al-
hliða framfarasókn þjóðar-
innar.
Dagur hefur verið í mikilli
sókn á undanförnum árum.
Hann hefur eflst að stærð og efnisúr-
vali og bætt aðstöðu sína á allan hátt.
Áskrifendum hefur íjölgað og lausa-
sala hefur aukist. Dagur hefur verið
helsti málsvari dreifbýlisins og
þeirra málefna sem vísað er til í orð-
um hér að framan.
Framfarasókn Dags á undanförn-
um árum rennir stoðum undir þá
ákvörðun sem hefur verið tekin og er
nú hrundið í framkvæmd - að hann
verði að dagblaði. Sem slíkur mun
hann vonandi geta enn betur gegnt
þýðingarmiklu hlutverki sínu.“
í blaðinu daginn áður hafði rit-
stjórinn, Hermann Sveinbjörnsson,
gert grein fyrir því, hvað til stæði, að
Dagur myndi framvegis koma út alla
virka daga vikunnar eða flmm blöð í
viku, verða dagblað, hið eina utan
Reykjavíkur.
Draumsýn Hauks Snorrasonar frá
því fyrir 27 árum er orðin að veru-
leika. Enn lifa 15 ár af öldinni. Merk-
um áfanga er náð, en endanlegt tak-
mark í blaðaútgáfu er ekki til.
Á þessum tímamótum eru starfs-
menn Dags og Dagsprents 34 talsins.
í blaðhaus er þessara getið: Ritstjóri
og ábyrgðarmaður: Hermann Svein-
björnsson. Ritstjórnarfulltrúi: Gísli
Sigurgeirsson. Fréttastjóri: Gylfi
Kristjánsson. Blaðamenn: Áslaug
Magnúsdóttir, Bragi V. Bergmann,
Gestur E. Jónasson, Ingibjörg Magn-
úsdóttir (Húsavík), Yngvi Kjart-
ansson, Kristján G. Arngrímsson,
Kristján Kristjánsson, Margrét Þ.
Þórsdóttir. Auglýsingastjóri: Frí-
mann Frímannsson. Utbreiðslu-
stjóri: Hafdís Freyja Rögnvaldsdóttir.
Framkvæmdastjóri: Jóhann Karl
Sigurðsson. Á einni síðu
tímamótablaðsins eru svo
myndir af öllu starfsfólkinu.
Það eru yfirleitt ungleg andlit.
Nokkrar breytingar hafa
orðið á starfsliði síðan Dagur
breyttist í dagblað, blaða-
menn hafa horfið til annarra
starfa og nýir komið í staðinn
og einnig ijölgað í starfshópn-
um. Með breytingunni í sept-
ember 1985 gerðist ekki
aðeins það, að Dagur breyttist
í dagblað, hann breyttist einn-
ig í stórfyrirtæki undir öruggri
stjórn Jóhanns Karls.
Á ritstjórninni hafa þær
breytingar orðið helstar, að
Gísli Sigurgeirsson hætti hjá
blaðinu snemma árs 1986,
en Bragi V. Bergmann tók við
starfi ritstjórnarfulltrúa um
mitt árið. Þá hvarf Gylfi Krist-
Gamlar svipmyndir frá Norðurlandi. Hvítserkur í Húnaþingi, Grenivíkurhöfn og Sauðárkrókskirkja. Væntanlega mun Dagur seint
opna skrifstofu á Grenivík, enda stutt að fara frá Akureyri. Hins vegar er Dagur með skrifstofu á tveimur stöðum á Norðurlandi
vestra, þ.e. á Sauðárkróki og Blönduósi.
Dagur 70 ára
45