Dagur - 12.02.1988, Síða 46
jánsson frá blaðinu í ársbyrjun 1987
og var sérstakur fréttastjóri ekki ráð-
inn í hans stað.
Ritstjóraskipti verða svo 1. júní á
síðasta ári, þegar Hermann Svein-
björnsson, sem stýrt hafði blaðinu
inn í dagblaðaheiminn, hverfur frá
blaðinu og ræðst til starfa hjá Sam-
bandi íslenskra samvinnufélaga.
Voru þá ráðnir tveir ritstjórar:
Áskell Pórisson, sem áður hafði
um langt skeið starfað við blaðið en
sinnt öðrum störfum síðustu árin,
verður ábyrgðarmaður blaðsins og
fréttaritstjóri, en Bragi V. Bergmann,
sem nú hafði um eins árs skeið verið
ritstjórnarfulltrúi, verður stjórn-
málalegur ritstjóri og ritstjóri
innblaðs.
Og hér skal þessari sögu lokið.
Stiklað hefur verið á stóru í sögu
þessa sjötuga afmælisbarns, en eink-
um rakinn sá þáttur, sem snertir rit-
stjórn blaðsins og þá um leið lesend-
ur. En það þarf fleira til en ritstjóra
og blaðamenn til að blað verði til og
komist í hendur lesenda. Páttur ann-
arra, sem að baki útgáfunni hafa
staðið hefur lítt verið rakinn. Segja
má, að þeir liggi óbættir hjá garði.
Peirra, sem lengst hafa sinnt af-
Fyrirtækin tvö, Dagur og Dagsprent, hafa aukið umsvif sín mjög á skömmum tíma og
nú er svo komiö að húsnæðið að Strandgötu 31 er orðið allt of lítið. Þessi mynd var
tekin í ágúst í fyrra, en þá var fyrsta skóflustungan tekin að nýju húsi sem verið er
að byggja á lóðinni. Þangað mun Dagur flytja á sumri komanda en Dagsprent fær þá
gamla húsið til eigin afnota.
Bifreiðir
og bílungar
Dagur 3. febrúar 1 928:
Bifreiðir. Samkvæmt skattskrá
1927 voru til í landinu 345 vöru-
flutningabifreiðir, 230 fólksflutn-
ingabifreiðir og 59 bílungar, eða
samtals 634. Þar af er rúmur
helmingur í Reykjavík, 192 vöru-
bifreiðir, 150 fólksbifreiðir og 46
bílungar. í Vestmannaeyjum 22
vörubifreiðir, Hafnarfirði og Gull-
bringusýslu 46, 38 fólksbifreiðir
og 8 bílungar. í Árnessýslu 18, 6
og 2, Eyjafjarðarsýslu og Akureyri
13, 15 og 3. - Af vörubifreiðum
eru 14 tegundir (flest Ford 204 og
Chevrolet 125). Af fólksbit'reiðum
eru 27 tegundir (flest af Chevrolet
51, Ford 41, Buick 40, Overland
36 og Fíat 1 3). Af öðrum tegund-
um eru ekki nema 1-5 af hverri
tegund. — Bílungarnir eru flestir
frá Harley Davidson 10, og
B.S.A. 9.
greiðslustörfum og auglýsingasöfnun
hefur aðeins verið getið, en miklu
ýtarlegar hefði mátt íjalla um þeirra
margvíslegu störf. Og fjölmargra,
sem við sögu blaðsins hafa kon.ið á
ýmsum vettvangi hefur alls ekki ver-
ið getið, enda myndi það fylla þykka
bók, ef rekja ætti alla þætti sögunnar.
Meðal þess, sem ótaiið er, eru störf
stjórnar Útgáfufélags Dags. Hún hef-
ur haft ærinn starfa sum árin, en
rólegra á milli. Formenn hennar
hafa alla jafnan verið þeir, sem á
hverjum tíma hafa gegnt starfi kaup •
félagsstjóra hjá KEA, enda ráð fyrir
því gert við stofnun félagsins að svo
skyldi vera.
Lokaorð
Blaðið Dagur, sem nú hefur komið út
í 70 ár, hefur gegnt og gegnir miklu
hlutverki sem almennt fréttablað fyr-
ir Norðurland, sem málsvari sam-
vinnustefnunnar, sem málgagn
Framsóknarflokksins og sem veiga-
mesta málgagn dreifbýlisins á ís-
landi, eina dagblaðið utan Reykja-
víkur.
Um framtíð blaðsins eða blaðaút-
gáfu yfirleitt skal hér engu spáð, von-
andi verður hún glæsileg og öllum til
sóma. En svo mikið er víst, að engin
ellimörk eru sjáanleg á hinu sjötuga
afmælisbarni. Þvert á móti er svipur
46
Dagur 70 ára