Dagur - 12.02.1988, Side 49
Dagur 21. febrúar 1924:
Húshitumn í
Reykhúsum
Á óðali Hallgríms Kristinssonar býr
ekkja hans, frú Marja Jónsdóttir. í
brekkunni neðan við íbúðarhúsið er
allstór og heit laug. Frú Marja réðist
í það á síðastliðnu hausti að láta gera
tilraun til að hita upp húsið með
lauginni og tók byggingafræðingur
Sveinbjörn Jónsson að sér að finna
úrlausn málsins og koma verkinu í
framkvæmd. Laugin er 10 metrum
lægra yfir sjávarflöt en húsið. Nú hef-
ir Sveinbjörn komið þessu í fram-
kvæmd á mjög frumlegan og kostn-
aðarlítinn hátt. Hann hefir notað
vatn, sem leitt var úr brunni ofan við
íbúðarhúsið, ofan í baðhús, er áður
var byggt hjá lauginni. Vatn þetta
leiðir hann gegnum mjög langa pípu,
sem vafin er upp í marga hringi og
látin liggja í þró fylltri laugarvatninu.
Á leiðinni gegnum pípuna verður
vatnið jafnheitt og laugarvatnið og
kemur inn í íbúðarhúsið 55° heitt. Er
skemmst af því að segja, að þannig
fæst ágætur hiti í allt húsið eða alls
10 herbergi og auk þess heitt vatn í
eldhúsinu til þvotta og matreiðslu.
Fær frú Marja vel launað áræði sitt
og kostnað endurgreiddan í ágætri
húshitun og þægindum beint úr
skauti jarðarinnar. Sveinbjörn er all-
merkilegur maður, ötull og ósér-
plæginn; gefinn fyrir að finna nýjar
leiðir til úrlausnar á okkar mörgu
vandkvæðum. Hann er uppfundinga-
maður r-steinsins, sem nú er mikið
notaður og nú hefir hann á merkileg-
an hátt fundið ráð til þess að nota
laugar til vatnshitunar, hversu sem
aðstöðu er háttað. Ættu þeir, sem
búa nærri laugum og hverum að
hagnýta hvorttveggja meira en orðið
er. Er örðugt að meta til fjár þann
sparnað og þá heilsuverndun, sem
slíkt veitir í okkar eldsneytissnauða
landi.
NÝJA-BÍÓ
sýnir fimmtudaginn 12. þ.m.
kl. 9
Falleg og skemmtileg mynd
með
Jean Hersholt
i aðalhlutverkinu.
Engin mynd er til af flugskip-
inu, sem skýrt var frá í Degi
þann 7. júní 1928. Þessi
mynd, sem tekin var í Hrísey
í fyrra, sýnir hins vegar í
senn gamla og nýja tímann.
Á sama hátt og flugskipin
hafa vikið fyrir nýtísku flug-
vélum hafa gömlu dráttar-
vélarnar þurft að víkja fyrir
vel búnum arftökum sínum.
Og víða koma fjórhjólin í
góðar þarfir við sveitastörf-
in.
Dagur 7. júní 1928:
Nýr gestur
- Flugskip heimsækir Akureyri
Nýstárlega sjón bar fyrir augu kl.
nálega 7V2 síðdegis á mánudaginn
var. Flugskipið „Súlan“ kom þá hing-
að á vegum Flugfélags íslands. Að
vísu kom mönnum sjón þessi ekki að
óvörum; það var á vitund allra
bæjarbúa, að flugskipsins var von
þennan dag. Frá því um hádegi
höfðu menn staðið gapandi af eftir-
væntingu og alstaðar var sama við-
kvæðið: „Hvenær kemur flugvélin?“
Endalyktin varð þá sú, að skipið sveif
hér yfir bænum, eins og fugl með
útþöndum vængjum, á fyrrnefndum
tíma. Það settist á sjóinn fram undan
Torfunefsbryggjunni; þaðan svam
það til lands út að Oddeyri austan við
nýju hafnaruppfyllinguna. Múgur og
margmenni þyrptist að, því marga
fýsti að sjá þetta nýtísku farartæki.
Loftskipið hafði enga farþega að
þessu sinni, því þetta var aðeins
reynsluför frá Reykjavík norður fyrir
land. Á því voru Qórir menn, þrír
Þjóðverjar. R. Walter flugmaður,
einn stýrimaður og einn vélamaður,
og auk þeirra dr. Alexander Jóhann-
esson, sem er einn í stjórn Flugfélags
íslands og ein mesta drifljöðrin í því
að koma á flugferðum hér á landi.
Dagur hafði tal af dr. Alexander og
gaf hann blaðinu meðal annars eftir-
farandi upplýsingar:
Ákveðið er að hafa tvær fastar
flugferðir á viku frá Reykjavík til
Akureyrar fram í miðjan september.
Er ákveðið að komudagur skipsins
verði á mánudögum og að líkindum
á fimmtudögum, ef veður ekki
hamlar. Skipið getur flutt fjóra far-
þega og má hver þeirra hafa með sér
flutning, 10 kg að þyngd án sérstaks
endurgjalds, og kostar farið milli
Rvíkur og Akureyrar 12 kr. Vél
skipsins hefir 230 hestafla styrk-
leika, og hraði þess er 130-180 km á
klst., eða rúmlega 150 km að meðal-
tali; með þeim hraða getur það þá
farið vegalengdina yfir ísland þvert,
frá Öndverðarnesstá til Gerpis á
rúmum þremur stundum, eða frá
Dalatá við Siglufjörð suður til Dyr-
hólaeyjar á rúmum tveimur
stundum. Ekki þurfa farþegar að
hræðast kulda í loftskipinu, því far-
þegarúmið er hitað upp í 20 stig.
Loftfararnir dvöldu hér í bænum þar
til kl. 7 síðd. á þriðjudag. Þá hóf
„Súlan“ sig upp af höfninni í háa loft
og var á svipstundu horfin sjónum
norður í geiminn.
(Á öðrum stað í blaðinu sama dag gat
að lesa eftirfarandi.)
Símskeyti - Rvík 6. júní.
Loftskipið Súlan varð að lenda í
Akraósi við Mýrar kl. 12 í nótt vegna
vélarbilunar. Mótorbátur sækir hana
í dag og flytur hana hingað.
Dagur 70 ára
49