Dagur - 12.02.1988, Qupperneq 50
Setning • Filmuvinna ■ Prentun: DAGSPRENT HF. • Akureyri
Verzlunin
<■ BRATTAHLÍÐ. ‘
N ý k o m i ð:
Margar teg. af enskunt húfum, svuntusilki, handklacði,
tvinni og peysufatakíæði sérstaklega gott.
Verzlunin hefir ennfremur birgðir af allskonar
ÁLNAVÖRU
svo sem: flónelum, tvististauum, hvítum léreftum, seviot og þrjár
teg. af kamgarni. Lífstykki, manchctskyrtur, flibba hálsbindi, fóðr-
aða regn og rykfrakka o. fl. SKÓTAU allskonar af beztu tegund.
Ennfremur allskonar leirtau:
pollapör, diskar, tarínur o. fl.
Kaffi, export, suðusúkkulaði, mjólk, ávextir, allskonar tóbak.
Komið og skoðið og sannfærist um að hér eru góðar
vörur með vægu dýrtíðarverði.
Brynjðlfur E. Stefánsson.
Karlmannafaínaður
Nýkomið
mikið úrval af allskonar karlmannafatnaði.
Mjög ódýr og smekkleg FERÐAFÖT.
Reið-treyjur og -buxur af ýmsum gerðum.
Drengjafatnaður.
Kaupfélag Eyfirðinga.
\ Qaddavír, /
• ágælar teguudir, útvegum vér beint frá fyrsta flokks verksmiðj- •
; um í F.nglandi. *#
/ Með uæslu skipum fáum vér nokkrar hirgðir. \
Reir bændur, scm þurfa að kaupa gaddavír á þessu vori.ættu
.* að tala við oss áður en þeir festa kaup annarsstaðar. *.
• Kaupfélag Eyfirðinga. j
Sýnishorn
bœjarfrétta
1922
Á fyrstu árum Dags var það oft meg-
inuppistaða bæjarfrétta, hverjir
hefðu komið til bæjarins og hverjir
farið úr bænum og hvaða utanbæjar-
menn væru gestkomandi. Samgöng-
ur voru þá með öðru sniði en nú er,
og það taldist til frétta, ef menn tóku
sér ferð á hendur til Reykjavíkur eða
jafnvel þó ekki væri nema vestur í
Skagafjörð eða austur í Þingeyjar-
sýslur. Ferðamannastraumurinn
var ekki mikill. Nú myndi það taka
ærið rúm í blaðinu, ef birta ætti nöfn
þeirra, sem dag hvern taka sér far til
Reykjavíkur eða koma þaðan, hvað
þá ef telja ætti alla þá, sem fara yfir
héraðamörkin í austri eða vestri. Hér
fer á eftir sýnishorn þessarar teg-
undar bæjarfrétta frá árinu 1922.
6. júlí:
ísland kom á laugardagsnótt. Margt
farþega var með skipinu. Hingað til
bæjarins komu meðal annarra: Séra
Geir Sæmundsson, Ragnar Ólafsson
konsúll, Jón E. Bergsveinsson form.
Fiskifél. íslands., Eggert Laxdal og
frú, Hulda Þorsteinsdóttir (fædd
Laxdal), Jónas Jónasson frá Flatey,
Jakob Thorarensen, íjármálaráð-
herra Magnús Jónsson með frú og
son á leið til útlanda, Magnús Sig-
urðsson bankastjóri, Jón H. Þor-
bergsson bóndi á Bessastöðum á leið
austur í Þingeyjarsýslu til að heim-
sækja frændur og vini og ennfremur í
ullarmatserindum. Ennfremur var
með skipinu Einar Benediktsson
skáld með frú á leið til útlanda.
27. júlí:
Goðofoss kom á laugardagsnóttina
og fór aftur á sunnudagskvöld. Meðal
farþega voru: Jónas Kristjánsson,
læknir frá Sauðárkr. Hann kom úr
Ameríkuför. Frá Khöfn: Otto Tulin-
ius kaupm. Frá Kópaskeri: Frk. Hall-
dóra Bjarnadóttir. Fjöldi farþega fór
með skipinu og þar á meðal til
Rvíkur: Lárus Bjarnason, kennari,
Theódor Jakobsson, framkvæmda-
stj. „Kol og Salt“, með frú og dóttur,
Jónatan Þorsteinsson kaupm. og frú,
Þórbergur Þórðarson, málfræðingur,
Sig. Skagfeldt, söngvari og ungfrú
Karlotta Eggertsdóttir frá Rvík.
Áleiðis vestur að Hrauni í Fljótum
fóru ungfrú Hulda Stefánsdóttir,
kennari og frú Kristín Jónsdóttir,
málari.
50
Dagur 70 ára