Þjóðmál - 01.12.2018, Side 7

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 7
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 5 En það þarf meira til. Það þurfa fleiri óháðir aðilar að láta til sín taka í baráttunni. Innan anga atvinnulífsins leynast mismun andi hagsmunir sem ekki fara alltaf saman og eftir tilvikum litast starf hagsmuna samtakanna af því. Þetta er ekki sagt til að gera lítið úr starfi þeirra, heldur til að ítreka þörfina á því að fleiri láta til sín taka í hugmynda baráttunni. Allt atvinnulífið hefur hagsmuni af því að minnka ríkisvaldið, lækka skatta, fækka reglugerðum og draga úr opinberu eftirliti. *** Góð stefnumótum byggir á góðum upplýsingum og atvinnulífið ber að hluta til ábyrgð á því að koma þeim upplýsingum á framfæri. Auðvelda lausnin er alltaf að stækka ríkisvaldið. Það verður sárt fyrir stjórnendur atvinnulífsins, sem nenntu hvorki að leggja fjármagn né tíma í hugmyndabaráttuna, að vakna einn daginn upp við sósíalisma. Halda menn að íslenskir sósíalistar séu á einhvern hátt mildari en útlenskir? *** En að öðru. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, skrifaði áhugaverða grein í Morgunblaðið þann 13. desember sl. Í greininni fjallar Áslaug Arna um þá staðreynd að ríkissjóður sé nú með um 300 milljarða króna bundna í íslensku bankakerfi, sé eigandi tveggja viðskipta- banka auk þess að reka Íbúðalánasjóð og Byggðastofnun. Þá segir Áslaug Arna að á meðal margra stjórn- málamanna ríki „skrýtið, jafnvel fordóma fullt, viðhorf í garð fjármálafyrirtækja,“ eins og hún komst að orði. Hún bendir réttilega á að tíu árum eftir hrun séu margir þeirrar skoðunar að það eigi að refsa bönkunum sérstaklega, leggja á þá hærri skatta en önnur fyrirtæki (líkt og gert er á Íslandi) en að á sama tíma sé ætlast til þess að þeir lækki vexti og gjöld og veiti góða þjónustu. „Þeir sem benda á öfugmælin við þessa þróun eru sakaðir um að vera málsvarar fjármálaafla og þeim gerðar upp annarlegar hvatir. […] Þetta er ekkert annað en ódýr popúlismi og það sjá allir skynsamir einstak- lingar,“ segir Áslaug Arna í grein sinni. Það er bæði rétt og mikilvægt að hrósa Áslaugu Örnu fyrir að hafa kjark og þor til að segja hlutina eins og þeir eru. Það er ekki draumur stjórnmálamanna að vera sakaðir um að vera málsvarar hinna illu fjármálaafla. Umsvif ríkisins á fjármálamarkaði eru hættu- lega mikil. Bankar eru samt ekkert öðruvísi en önnur fyrirtæki. Þetta eru þjónustufyrirtæki sem nú horfa fram á miklar áskoranir í ljósi þeirrar tækniþróunar sem er að eiga sér stað. Hlutverk þeirra er að breytast – og jafnvel minnka frá því sem áður var. Fólk getur fengið kreditkort hjá öðrum en bönkum, greiðslumiðlun fer fram í fjölbreyttara formi en áður og það eru fleiri aðilar farnir að veita lán, svo talin séu upp nokkur atriði í þessari þróun. Það gefur því augaleið að ríkið á ekkert erindi inn í þessa starfsemi og eina hlutverk eða aðkoma ríkisins að rekstri fjármálafyrirtækja á að vera sú að skapa þeim skýrar en einfaldar reglur og koma því skýrt áleiðis að þeim verði ekki bjargað á kostnað skattgreiðenda ef illa fer – ekki frekar en öðrum fyrirtækjum. Það er síðan hlutverk fjármálafyrirtækjanna að auka traust og ásýnd sína meðal almennings. *** Til að tvinna þetta saman við fyrri umræðu um hugmyndabaráttuna, þá liggur fyrir að hlutverk atvinnulífsins er að sýna fram á að hagsmunir þess fari saman við hagsmuni launþega og almennings – sem þeir vissu- lega gera. Hvorugur getur án hins verið. Það er ekki alltaf auðvelt og sérstaklega ekki þegar helstu stéttarfélögunum er stjórnað af æsingarfólki – en þessari baráttu þarf að sinna af heilum hug. Æsingamenn koma og fara en kapítalisminn og frelsið er vonandi komið til að vera. Að því sögðu þakkar ritstjóri Þjóðmála fyrir árið og óskar lesendum blaðsins gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Gísli Freyr Valdórsson

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.