Þjóðmál - 01.12.2018, Side 12
10 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018
Hann hnykkir á og segir:
„Ég hef hlustað á þingmenn flestra flokka
úthúða flokksfélögum sínum og nota
orðbragð sem í sumum, jafnvel mörgum,
tilvikum er enn grófara en það sem birst
hefur að undanförnu. Þingmenn af báðum
kynjum eiga þar í hlut og fórnarlömbin eru
auk þess af báðum kynjum.“
Og enn segir flokksformaðurinn:
„Mér hefur þótt það til marks um einstaka
hræsni þegar fólk sem maður hefur ítrekað
heyrt segja hreint út sagt ógeðfellda hluti
um félaga sína og grófustu brandara sem
ég veit um stígur nú fram uppfullt af vand-
lætingu.“
Allt er þetta sagt til að skýra hvers vegna
Gunnar Bragi og Bergþór Ólason áformi „að
taka sér leyfi frá störfum. Iðrun þingmanna
er mikil og einlæg og ég vona að þið getið
með tímanum séð ykkur fært að veita fyrir-
gefningu,“ segir Sigmundur Davíð.
Þetta telur Sigmundur Davíð einnig duga
sér til varnar og hann sitji áfram á þingi sem
flokksformaður eins og það eina sem hafi
gerst sé að hann hafi ekki slitið drykkju-
samkvæmi þegar hæst stóð.
Birt hefur verið útskrift sem sýnir að
Sigmund ur Davíð flutti langt mál um innkomu
sína í stjórnmálin að hvatningu Guðna Ágústs-
sonar. Hve miklu skipti fyrir hann að kynnast
Gunnari Braga, sem veitti honum ekki
stuðning í fyrstu en hefði síðan ávallt staðið
eins og klettur sér við hlið.
Erindi þessara pólitísku fóstbræðra við forystu-
menn í þingflokki Fólks flokksins var að fá
þá til að standa með sér að mið-hægriflokki.
Það væri dauðadæmt fyrir þá að vera í flokki
undir forystu Ingu Sæland – þar köstuðu
þeir hæfileikum sínum á glæ en nýttu þá
til fulls í samstarfi innan Miðflokksins undir
formennsku Sigmundar Davíðs.
V.
Þannig er ástandið í tveimur af fimm stjórnar-
andstöðuflokkunum þegar ríkisstjórnin
fagnar eins árs afmæli.
Staðan í flokki Pírata er ekki góð. Agnes
Braga dóttir birti fróðlega skýringu á henni á í
Morgunblaðinu 28. september.
Samstarfsmönnum Pírata á þingi finnst þeir
„afskaplega erfiðir í samstarfi“. Þórhildur
Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður
Pírata, og Halldóra Mogensen, varaformaður
þingflokksins, sækja illa fundi formanna þing-
flokka með forseta alþingis og tilviljun virðist
ráða hver kemur í þeirra stað. Agnes segir:
„Þetta hafi orðið til þess að þingmenn
Pírata hafi á stundum ekki verið með á
nótunum hvað varðar dagskrá þingsins
og hleypt vissum óróa í þingsal af þeim
sökum.“
Innan raða Pírata ríkir það sjónarmið að þing-
menn þeirra séu ekki bundnir af sameigin-
legum ákvörðunum á fundi þingforseta
með formönnum þingflokka nema að gefnu
skriflegu samþykki. Þetta endurspeglar ekki
annað en óeiningu og vantraust milli Pírata
sjálfra. Þeir hafa samþykkt að tilkynna forseta
alþingis skriflega hvort þingflokkur þeirra og
þingflokksformaður samþykki tillögu þing-
forseta, þetta lýtur meðal annars að tilhögun
funda, lengd ræðutíma eða annarra slíkra
hluta sem ákveða þarf til að tryggja fram-
gang mála á þingi.
Þegar Agnes leitaði eftir áliti þingflokksfor-
manna eða þeirra sem sitja í forsætisnefnd
alþingis á þessu ráðslagi Pírata og ræðu
Helga Hrafns, þingmanns þeirra, um það vildi
enginn nema píratinn Jón Þór Ólafsson tjá
sig; „Þeir töldu að slíkt væri einungis til þess
fallið að stökkva olíu á eldinn og sögðust
ekkert vilja segja, sem reitt gæti Pírata til
reiði.“
Þetta orðalag bendir til þess að einhvers
konar reiði- eða frekjustjórn Pírata ráði máli
manna í Alþingishúsinu. Fólk hafi fengið svo
upp í kok af yfirgengilegri framgöngu að það
þegi til að halda friðinn.
6