Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 12

Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 12
10 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Hann hnykkir á og segir: „Ég hef hlustað á þingmenn flestra flokka úthúða flokksfélögum sínum og nota orðbragð sem í sumum, jafnvel mörgum, tilvikum er enn grófara en það sem birst hefur að undanförnu. Þingmenn af báðum kynjum eiga þar í hlut og fórnarlömbin eru auk þess af báðum kynjum.“ Og enn segir flokksformaðurinn: „Mér hefur þótt það til marks um einstaka hræsni þegar fólk sem maður hefur ítrekað heyrt segja hreint út sagt ógeðfellda hluti um félaga sína og grófustu brandara sem ég veit um stígur nú fram uppfullt af vand- lætingu.“ Allt er þetta sagt til að skýra hvers vegna Gunnar Bragi og Bergþór Ólason áformi „að taka sér leyfi frá störfum. Iðrun þingmanna er mikil og einlæg og ég vona að þið getið með tímanum séð ykkur fært að veita fyrir- gefningu,“ segir Sigmundur Davíð. Þetta telur Sigmundur Davíð einnig duga sér til varnar og hann sitji áfram á þingi sem flokksformaður eins og það eina sem hafi gerst sé að hann hafi ekki slitið drykkju- samkvæmi þegar hæst stóð. Birt hefur verið útskrift sem sýnir að Sigmund ur Davíð flutti langt mál um innkomu sína í stjórnmálin að hvatningu Guðna Ágústs- sonar. Hve miklu skipti fyrir hann að kynnast Gunnari Braga, sem veitti honum ekki stuðning í fyrstu en hefði síðan ávallt staðið eins og klettur sér við hlið. Erindi þessara pólitísku fóstbræðra við forystu- menn í þingflokki Fólks flokksins var að fá þá til að standa með sér að mið-hægriflokki. Það væri dauðadæmt fyrir þá að vera í flokki undir forystu Ingu Sæland – þar köstuðu þeir hæfileikum sínum á glæ en nýttu þá til fulls í samstarfi innan Miðflokksins undir formennsku Sigmundar Davíðs. V. Þannig er ástandið í tveimur af fimm stjórnar- andstöðuflokkunum þegar ríkisstjórnin fagnar eins árs afmæli. Staðan í flokki Pírata er ekki góð. Agnes Braga dóttir birti fróðlega skýringu á henni á í Morgunblaðinu 28. september. Samstarfsmönnum Pírata á þingi finnst þeir „afskaplega erfiðir í samstarfi“. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata, og Halldóra Mogensen, varaformaður þingflokksins, sækja illa fundi formanna þing- flokka með forseta alþingis og tilviljun virðist ráða hver kemur í þeirra stað. Agnes segir: „Þetta hafi orðið til þess að þingmenn Pírata hafi á stundum ekki verið með á nótunum hvað varðar dagskrá þingsins og hleypt vissum óróa í þingsal af þeim sökum.“ Innan raða Pírata ríkir það sjónarmið að þing- menn þeirra séu ekki bundnir af sameigin- legum ákvörðunum á fundi þingforseta með formönnum þingflokka nema að gefnu skriflegu samþykki. Þetta endurspeglar ekki annað en óeiningu og vantraust milli Pírata sjálfra. Þeir hafa samþykkt að tilkynna forseta alþingis skriflega hvort þingflokkur þeirra og þingflokksformaður samþykki tillögu þing- forseta, þetta lýtur meðal annars að tilhögun funda, lengd ræðutíma eða annarra slíkra hluta sem ákveða þarf til að tryggja fram- gang mála á þingi. Þegar Agnes leitaði eftir áliti þingflokksfor- manna eða þeirra sem sitja í forsætisnefnd alþingis á þessu ráðslagi Pírata og ræðu Helga Hrafns, þingmanns þeirra, um það vildi enginn nema píratinn Jón Þór Ólafsson tjá sig; „Þeir töldu að slíkt væri einungis til þess fallið að stökkva olíu á eldinn og sögðust ekkert vilja segja, sem reitt gæti Pírata til reiði.“ Þetta orðalag bendir til þess að einhvers konar reiði- eða frekjustjórn Pírata ráði máli manna í Alþingishúsinu. Fólk hafi fengið svo upp í kok af yfirgengilegri framgöngu að það þegi til að halda friðinn. 6
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.