Þjóðmál - 01.12.2018, Qupperneq 14

Þjóðmál - 01.12.2018, Qupperneq 14
12 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 VI. Þegar hugað er að málefnum sem sameina stjórnarandstöðuflokkana eru þau ekki auð- greinanleg. Undanfarnar vikur hefur 3. orku- pakkamálið, það er hvort innleiða eigi þetta EES-mál í íslensk lög, borið hátt. Athygli vakti að Sigmundur Davíð og Gunnar Bragi hafa allt aðra afstöðu til málsins nú en þegar þeir sátu í ríkisstjórn sem forsætisráðherra og utanríkis- ráðherra. Þá unnu þeir að því að 3. orku- pakkinn yrði EES-mál og Sigmundur Davíð ræddi við David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, um ágæti þess að leggja sæstreng til að flytja raforku milli Íslands og Bretlands. Nú segjast þeir vera andvígir hvoru tveggja. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, er einnig andvíg innleiðingu 3. orkupakkans, Í umræðum um afstöðu Íslendinga til EES- samstarfsins er stundum vakið máls á því að það yrði betri leið til samstarfs við ESB að gera tvíhliða samninga eins og EFTA-ríkið Sviss hefur gert. Það er mikill misskilningur að Íslendingar yrðu betur settir í stöðu Sviss. Þegar rætt er um hana horfa menn gjarnan framhjá því að allt aðrir stjórnarhættir ríkja í Sviss en hér á landi. Skal eitt nýlegt dæmi nefnt því til stuðnings. Svissneskir kjósendur höfnuðu með miklum meirihluta í þjóðaratkvæðagreiðslu sunnu- daginn 25. nóvember tillögu um „forgang svissneskra laga“. Alls sögðu 66,2% nei við tillögunni en 33,8% já. Kjörsókn var mikil á svissneskan mælikvarða við þjóðaratkvæða- greiðslur; 47,7%. Lýðflokkurinn (SVP), hægriflokkur, stóð að baki tillögunni, sem fól í sér að alþjóðleg lagaákvæði vikju fyrir svissneskum lögum nema með mjög fáum undantekningum. Í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar sögðu stuðningsmenn tillögunnar að sjálfstæði Sviss og stjórnarhættir þjóðarinnar, reistir á beinu lýðræði, væru í hættu. Andstæðingar tillögunnar sögðu hana á hinn bóginn ógna stöðugleika, lífskjörum og trúverðugleika Svisslendinga sem þátttakenda í alþjóðasam- starfi. Hefði tillagan hlotið samþykki kynni hún að hafa leitt til þess að Svisslendingar segðu sig frá alþjóðlegum skuldbindingum. Var jafnvel talið að með henni yrði vegið að mannréttindum. SVP hefur beitt sér fyrir ýmsum tillögum um málefni útlendinga og hafa sumar þeirra hlotið meirihlutastuðning. Flokkurinn nær að jafnaði minni árangri þegar hann snýr sér að hreinum innanlandsmálum. Niðurstaðan að þessu sinni var meðal annars skýrð á þann hátt að hvað sem liði mikilli varð stöðu Svisslendinga um beint lýðræði hefðu þeir hafnað tillögunni um forgang svissneskra laga vegna þess að þeir vildu ekki spilla áliti sínu og lands síns út á við eða spilla fyrir út flutningi. Hans-Ueli Vogt, þingmaður SVP og upphafs- maður tillögunnar, sagði úrslitin sýna „hægfara dauða beins lýðræðis“. Skýringar á að SVP tapaði í atkvæðagreiðslunni lytu meðal annars að því að flokkurinn væri kominn eins langt og honum væri fært á þeirri braut að vinna að einangrun Sviss. Eitt væri að vilja sporna við straumi útlendinga til landsins, annað að reisa lagamúra á öllum sviðum um landið. Svo virðist sem andstæðingar 3. orkupakkans, sem er hér aðeins til umræðu af því að Ísland er EFTA-ríki í EES, vilji nota hann til að spilla almennt samstarfi okkar á EES-vettvangi, ef ekki beinlínis taka stefnuna út úr EES. Sé litið á efnislega hlið málsins eru andmælin gegn 3. orkupakkanum einskis virði, sé formlega hliðin hins vegar metin getur einhliða skamm- sýni við afgreiðslu málsins valdið sama tjóni hér og sagt var að kynni að hafa orðið í Sviss með því að samþykkja ofangreinda tillögu SVP-flokksins. Þennan sama sunnudag, 25. nóvember, greiddu Svisslendingar atkvæði um tvær aðrar tillögur. Í fyrsta lagi um hvort veita ætti þeim sem kanna með leynd grun um sviksemi félagslegra bótaþega auknar heimildir til rannsókna og í öðru lagi um hvort banna ætti bændum að saga horn af kúm og geitum. Fyrri tillagan var samþykkt með 64,7% atkvæða en síðari tillagan var felld með 54,7% atkvæða.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.