Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 14
12 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018
VI.
Þegar hugað er að málefnum sem sameina
stjórnarandstöðuflokkana eru þau ekki auð-
greinanleg. Undanfarnar vikur hefur 3. orku-
pakkamálið, það er hvort innleiða eigi þetta
EES-mál í íslensk lög, borið hátt. Athygli vakti
að Sigmundur Davíð og Gunnar Bragi hafa allt
aðra afstöðu til málsins nú en þegar þeir sátu
í ríkisstjórn sem forsætisráðherra og utanríkis-
ráðherra. Þá unnu þeir að því að 3. orku-
pakkinn yrði EES-mál og Sigmundur Davíð
ræddi við David Cameron, forsætisráðherra
Bretlands, um ágæti þess að leggja sæstreng
til að flytja raforku milli Íslands og Bretlands.
Nú segjast þeir vera andvígir hvoru tveggja.
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, er
einnig andvíg innleiðingu 3. orkupakkans,
Í umræðum um afstöðu Íslendinga til EES-
samstarfsins er stundum vakið máls á því
að það yrði betri leið til samstarfs við ESB að
gera tvíhliða samninga eins og EFTA-ríkið
Sviss hefur gert. Það er mikill misskilningur
að Íslendingar yrðu betur settir í stöðu Sviss.
Þegar rætt er um hana horfa menn gjarnan
framhjá því að allt aðrir stjórnarhættir ríkja
í Sviss en hér á landi. Skal eitt nýlegt dæmi
nefnt því til stuðnings.
Svissneskir kjósendur höfnuðu með miklum
meirihluta í þjóðaratkvæðagreiðslu sunnu-
daginn 25. nóvember tillögu um „forgang
svissneskra laga“. Alls sögðu 66,2% nei við
tillögunni en 33,8% já. Kjörsókn var mikil á
svissneskan mælikvarða við þjóðaratkvæða-
greiðslur; 47,7%.
Lýðflokkurinn (SVP), hægriflokkur, stóð að
baki tillögunni, sem fól í sér að alþjóðleg
lagaákvæði vikju fyrir svissneskum lögum
nema með mjög fáum undantekningum.
Í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar sögðu
stuðningsmenn tillögunnar að sjálfstæði
Sviss og stjórnarhættir þjóðarinnar, reistir á
beinu lýðræði, væru í hættu. Andstæðingar
tillögunnar sögðu hana á hinn bóginn ógna
stöðugleika, lífskjörum og trúverðugleika
Svisslendinga sem þátttakenda í alþjóðasam-
starfi.
Hefði tillagan hlotið samþykki kynni hún að
hafa leitt til þess að Svisslendingar segðu sig frá
alþjóðlegum skuldbindingum. Var jafnvel talið
að með henni yrði vegið að mannréttindum.
SVP hefur beitt sér fyrir ýmsum tillögum um
málefni útlendinga og hafa sumar þeirra
hlotið meirihlutastuðning. Flokkurinn nær að
jafnaði minni árangri þegar hann snýr sér að
hreinum innanlandsmálum.
Niðurstaðan að þessu sinni var meðal annars
skýrð á þann hátt að hvað sem liði mikilli
varð stöðu Svisslendinga um beint lýðræði
hefðu þeir hafnað tillögunni um forgang
svissneskra laga vegna þess að þeir vildu ekki
spilla áliti sínu og lands síns út á við eða spilla
fyrir út flutningi.
Hans-Ueli Vogt, þingmaður SVP og upphafs-
maður tillögunnar, sagði úrslitin sýna „hægfara
dauða beins lýðræðis“. Skýringar á að SVP
tapaði í atkvæðagreiðslunni lytu meðal annars
að því að flokkurinn væri kominn eins langt
og honum væri fært á þeirri braut að vinna að
einangrun Sviss. Eitt væri að vilja sporna við
straumi útlendinga til landsins, annað að reisa
lagamúra á öllum sviðum um landið.
Svo virðist sem andstæðingar 3. orkupakkans,
sem er hér aðeins til umræðu af því að Ísland
er EFTA-ríki í EES, vilji nota hann til að spilla
almennt samstarfi okkar á EES-vettvangi, ef
ekki beinlínis taka stefnuna út úr EES. Sé litið á
efnislega hlið málsins eru andmælin gegn
3. orkupakkanum einskis virði, sé formlega
hliðin hins vegar metin getur einhliða skamm-
sýni við afgreiðslu málsins valdið sama tjóni
hér og sagt var að kynni að hafa orðið í Sviss
með því að samþykkja ofangreinda tillögu
SVP-flokksins.
Þennan sama sunnudag, 25. nóvember,
greiddu Svisslendingar atkvæði um tvær
aðrar tillögur. Í fyrsta lagi um hvort veita ætti
þeim sem kanna með leynd grun um sviksemi
félagslegra bótaþega auknar heimildir til
rannsókna og í öðru lagi um hvort banna ætti
bændum að saga horn af kúm og geitum. Fyrri
tillagan var samþykkt með 64,7% atkvæða en
síðari tillagan var felld með 54,7% atkvæða.