Þjóðmál - 01.12.2018, Side 19

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 19
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 17 ÞINGVELLIR Hárbeitt umræða á hverjum sunnudegi ÞINGVELLIR Hárbeitt umræða á hverjum sunnudegi ÞINGVELLIR Hárbeitt umræða á hverjum sunnudegi Helstu vandamál Nýjungar kalla á óvissu og aðlögun, það er mikilvægt að hjálpa kennurum að tileinka sér nýtt efni og nýjar aðferðir. Það þarf að líta á forritun sem hluta af læsi og allir þurfa að laga sig að því. Með fjórðu iðnbyltingunni skapast mörg störf sem ekki eru til í dag, störf þar sem þarf að reiða sig á tæknilæsi og forritunarkunnáttu. Við verðum að undirbúa þau börn sem eru í skóla í dag undir það. Kennarar verða að fá þá aðstoð sem þeir þurfa. Það þarf líka að hafa öfluga símenntun á sviðinu því tæknin tekur örum framförum og mikilvægt að fylgjast með nýjust stefnum og straumum. Grunnskólar verða líka að hafa aðgang að þeim tækjum og tólum sem nýtast við kennsluna. Niðurstaða Forritunarkennsla ætti að vera hluti af námi í grunnskólum. Hún eflir ýmsa mikilvæga þætti hjá börnum sem eru nauðsynlegir í nútíma samfélagi. Forritun og forritunarleg hugsun eykur færni í að leysa vandamál, rökhugsun og sköpunargáfu. Áætlað er að árið 2020 muni vanta 800.000 manns með tæknimenntun í Evrópu. Við verðum að undirbúa börnin fyrir framtíðina. Við getum ekki beðið lengur, við verðum að byrja núna. Höfundur er borgarfulltrúi í Reykjavík og hugbúnaðarverkfræðingur.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.