Þjóðmál - 01.12.2018, Side 27

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 27
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 25 Væntingar heimila og fyrirtækja eru á niður- leið og krónan hefur veikst. Allt eru þetta merki um kólnandi hagkerfi. Slök hagstjórn hefur undantekningarlítið leitt til efnahagsáfalla í kjölfar góðæra á Íslandi. Í lok síðari heimsstyrjaldarinnar var ríflegum gjaldeyrisforða glutrað niður á tveimur árum í miðstýrðar og misráðnar fjárfestingar. Með- fylgjandi samdráttur reyndist Íslendingum erfiður en Marshallaðstoðin og framkvæmdir Bandaríkjahers drógu landsmenn upp úr öldudalnum. Árið 1952 hófst efnahagsþensla á ný sem leiddi til mikillar i spennu á vinnu- markaði sem að lokum braust út í víðtækum sex vikna verkföllum árið 1955. Í kjölfarið dró úr hagvexti, ekki síst vegna minni sjávarafla og lakari viðskiptakjara. Þegar Viðreisnarstjórnin tók við stjórnar- taumunum árið 1960 var ráðist í róttækar aðgerðir til að rétta af samkeppnisstöðu landsins. Þær fólust m.a. í einföldun flókins fyrirkomulags gengismála, opinbert gengi krónunnar var fellt um 57% og lögbundin vísitölubinding launa afnumin. Þessar aðgerðir og afnám ýmissa hafta lögðu grunn að heilbrigðara efnahagsumhverfi í hátt við það sem ríkti á Vesturlöndum. Ekki leið þó langur tími uns vísitölubindingu var aftur komið á með „Júnísamkomulaginu“ svo nefnda árið 1964. Þeir þríhliða kjara- samningar voru gerðir í mikilli efnahags- uppsveiflu, sem stafaði af margföldun verðmætis síldarafla, og samhliða var ráðist í einhverjar stærstu aðgerðir sem gerðar hafa verið í húsnæðismálum þjóðarinnar með byggingu Breiðholtsins. Á þessum árum hækkaði raungengi krónunnar mikið, enda gengi krónunnar fast á sama tíma og inn- lendur kostnaður hækkaði óðfluga, þannig að rekstrarskilyrði útflutningsgreina versnuðu til muna. Efnahagsuppsveiflan var byggð á einhæfum grunni síldveiða og í kjölfar þess að síldin hvarf árið 1967 var gengi krónunnar fellt um 50% og við tók við ein dýpsta efna- hagslægð síðustu aldar. Í upphafi áttunda áratugarins batnaði hagur landsmanna á ný. Í umhverfi bættra viðskipta - kjara og aukins sjávarafla var vinnu vikan stytt með lögum um fjórar stundir í ársbyrjun 1972. Lagasetningin hækkaði launakostnað atvinnulífsins um 15% á augabragði sem, auk vísitölubindingar launa og ofþenslu í efnahagslífinu, hrinti af stað tugprósenta verðbólgu á örfáum misserum. Íslendingar voru því illa í stakk búnir til að bregðast við ytri áföllum. Þau létu þó ekki bíða eftir sér því haustið 1973 skall á olíukreppa, skömmu síðar hófst eldgos í Vestmannaeyjum og alþjóðlega fastgengiskerfið, sem kennt er við Bretton Woods, leið undir lok. Í kjölfarið var gengi krónunnar fellt um 50% með með- fylgjandi kjaraskerðingu. UppsveiflaUppsveifla Núverandi uppsveifla Hrein erlend staða Íslands Hlutfall af VLF Viðskiptajöfnuður Íslands Hlutfall af VLF 60 -160 -140 0 -40 20 40 -120 -60 -80 -100 -20 20 17 20 02 20 06 19 96 20 15 19 90 20 07 19 91 19 92 19 93 19 94 19 95 19 97 19 98 19 99 20 00 20 01 20 03 20 04 20 14 20 05 20 08 20 09 20 10 20 11 20 12 20 13 20 16 3F 2 01 8 Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands -25 -10 5 0 10 -20 -15 -5 20 15 19 96 19 90 19 91 20 03 19 92 19 93 19 94 20 07 19 95 20 16 19 98 19 99 20 00 20 01 20 02 20 04 20 05 20 06 20 08 20 10 20 09 20 13 20 11 20 12 20 14 20 17 19 97 Hrein erlend staða 13% af VLF

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.