Þjóðmál - 01.12.2018, Page 33

Þjóðmál - 01.12.2018, Page 33
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 31 Samkvæmt athugunum Viðskiptaráðs, byggðum á gögnum frá Hagstofunni er ein sviðsmynd sú að hækka 1. skattþrep upp í 60,54% og 2. þrepið upp í 67,25% (sjá mynd 3). Það myndi þýða að hið opinbera tæki nærri tveimur af hverjum þremur krónum sem einstaklingar afla sér umfram lágmarks- laun. Ekki þarf mikla rannsóknarvinnu til að staðfesta að slíkir jaðarskattar þekkjast varla. Heyrst hafa hugmyndir um að setja þurfi hátekjuskatt á tekjur yfir 20 milljónum á ársgrundvelli eða álíka. Slíkt myndi skila ríkissjóði litlu meira en 5 milljörðum króna í tekjur á ári ef miðað er við 75% skatt. Staðreyndin er sú að margfalt stærri hluti Íslendinga er í millitekjuhópum held en hátekju hópum og því lenda byrðarnar óumflýjanlega á millitekjuhópum. Enn fremur má nefna að skattbyrðin er nú þegar nær öll á efri hluta tekjudreifingarinnar – þau 40% landsmanna sem höfðu hæstu tekjurnar eða 574 þúsund krónur á mánuði eða meira, greiddu um 82% af sköttum einstaklinga árið 2017. Er algjör jöfnuður raunhæfur eða eftirsóknarverður? Nú hefur verið tekið fram að ef kröfum um breytingar á skattkerfinu verði ekki mætt muni þurfa meiri launahækkanir og öfugt. Þó kemur fram í kröfugerð VR bæði krafa um krónutöluhækkanir sem nema 125.000 á mánuði upp allan launastigann og að lægstu laun verði skattfrjáls. Kröfugerð SGS orðar þetta öðruvísi og sumt í kröfunum virðist óljóst. Við vitum þó, eins og hér hefur verið rakið að kröfurnar eru miklar. Hvað ef gengið verður að kröfum um krónutöluhækkanir og skattleysismörk verða samtímis færð upp í 300 þúsund krónur? Viðskiptaráð Íslands | 3

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.