Þjóðmál - 01.12.2018, Side 37

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 37
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 35 Ekki gera ekki neitt Ofangreint kann að hljóma sem svo að ekki eigi að gera neitt til að bæta kjör landsmanna, þar á meðal þeirra lægst launuðu. Ekkert er eins fjarri sanni. Eins og áður segir snýst ágreiningurinn á vinnumarkaði miklu frekar um leiðir heldur en markmið. Til að bæta kjör landsmanna, þar með talið þeirra sem hafa lægstu kjörin, þarf að halda áfram þeirri vegferð sem hefur staðið yfir frá fullveldi og hefur átjánfaldað það sem er til skiptanna á hvern einstakling. Til þess þurfum við einkum stöðugt og gott rekstrarumhverfi fyrirtækja til að þau geti skapað örugg og góð störf. Ekki hvað síst þarf að leita leiða til að halda áfram að skapa nýjar útflutningsgreinar, sem eru grunnurinn að hagsæld á Íslandi. Viðskipta ráð og aðrir hafa bent á fjölda leiða, stórar sem smáar, til stefna að aukinni hag- sæld sem er efni í margar greinar. Hægt er að fara aðrar leiðir en þær sem auka beinlínis hagvöxt og horfa einnig á lífskjör í stærra samhengi. Til dæmis er hægt að auka sveigjanleika vinnutíma og ná þannig fram stórum hluta þess ávinnings sem stytting vinnuvikunnar myndi hafa í för með sér. Í framhaldinu er svo hægt að leita leiða til að stytta vinnuvikuna í skrefum, ef vilji er til þess meðal launþega. Einnig eru tækifæri fólgin í því að endurskoða almannatrygginga-, bóta- og tekjuskattkerfi, t.d. í takt við það sem hefur verið lagt upp af stjórnvöldum og samráðvettvangi um aukna hagsæld. Þannig geta kerfin bæði orðið sanngjarnari og skilvirkari. Stærsta atriðið, sem allir eru sammála um að þurfi að leysa, er húsnæðisskortur sem hefur farið stigvaxandi síðustu ár og leitt til hærri kaup- og leiguverðs. Til að leysa skortinn er lausnin ósköp ein- föld; Byggja þarf íbúðir, þó það skipti að sjálfsögðu máli hvernig það er gert. Eitt er víst að fjöldi íbúða verður ekki dregin upp úr launaumslögum og bótakerfum ríkissjóðs. Lausnin fellst í að leita leiða til að byggja hraðar og meira. Hafa skal þó í huga að í því felst jafnvægislist og offramboð getur orðið á íbúðum sem skapar önnur vandamál. Hægt hefur á fólksflutningum til landsins á sama tíma og íbúðafjárfesting fer enn vaxandi sem birtist í að um 2.100 íbúðir koma inn á markaðinn á höfuðborgarsvæðinu á þessu ári skv. áætlun Samtaka iðnaðarins. Útlit er fyrir áframhald á þeirri þróun þar sem sjaldan hafa verið jafn margar íbúðir í byggingu á landinu og því kann að þurfa minni innspýtingu umfram það en virðist í fyrstu. Við erum öll á sama báti Það er ósk allra að kaupmáttur landsmanna sé sem mestur og að hér séu greidd há laun. Ekkert verður þó til úr engu og launin þurfa að endurspegla íslenskan veruleika. Ef þau gera það ekki tapar meginþorri landsmanna, ekki síst þeir tekjulægstu sem rannsóknir benda til að verði verst úti í verðbólguskoti. Ólíkt því sem reynt er að telja okkur trú um, að við eigum í stríði við hvort annað, þá erum við öll á sama báti í örhagkerfi langt úti á ballarhafi. Höfundur er hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands. ... þau 40% landsmanna sem höfðu hæstu tekjurnar eða 574 þúsund krónur á mánuði eða meira, greiddu um 82% af sköttum einstaklinga árið 2017.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.