Þjóðmál - 01.12.2018, Page 39

Þjóðmál - 01.12.2018, Page 39
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 37 - 1,00 2,00 3,00 4,00 5,00 6,00 7,00 8,00 9,00 19 57 19 58 19 59 19 60 19 61 19 62 19 63 19 64 19 65 19 66 19 67 19 68 19 69 19 70 19 71 19 72 19 73 19 74 19 75 19 76 19 77 19 78 19 79 19 80 19 81 19 82 19 83 19 84 19 85 19 86 19 87 19 88 19 89 19 90 19 91 19 92 19 93 19 94 19 95 19 96 19 97 19 98 19 99 20 00 20 01 20 02 20 03 20 04 20 05 20 06 20 07 20 08 20 09 20 10 20 11 20 12 20 13 20 14 20 15 20 16 20 17 20 18 Atvinnuleysi á Íslandi í % af vinnuafli Heimild: Hagstofa Íslands launakostnaði fyrirtækja. Verkalýðshreyfingin taldi á þessum árum að það væri hægt að skipta þjóðarkökunni jafnara og það væri sanngirnis mál að laun dygðu til framfærslu, svipað og við heyrum aftur í dag. Hver var útkoman? Afrakstur kjarasamninga hvarf oft nánast á einni nóttu í verðbólgu- báli í kjölfar gengisfellinga. Frá 1970 til 1990 hækkaði verðlag á Íslandi um ríflega þrjátíuþúsund prósent (31479% Heimild: Hagstofa) en kaupmáttur lítið. Árið 1990 var kaupmáttur dagvinnulauna verkakarla í Reykjavík t.d. 10% lakari en hann hafði verið 1955. (Heimild: vefur ASÍ) Hvers vegna breyttust viðhorf verka­ lýðshreyfingarinnar upp úr 1990? Með þjóðarsáttarsamningunum 1990 hófst nýtt tímabil á hinum almenna vinnumarkaði með hóflegri launahækkunum og lægri verðbólgu sem staðið hefur til þessa. Það voru fjölmargir samverkandi þættir sem réðu þeirri þróun. Með bættri þekkingu á þróun kaupmáttar varð mönnum smá saman ljóst að hækkun launa skilaði sér ekki alltaf í hærri kaupmætti. Hagfræðingar höfðu verið ráðnir til verkalýðshreyfingarinnar og varð einn þeirra, Ásmundur Stefánsson, kosinn forseti ASÍ 1988. Síðan hefur annar hagfræðingur, Gylfi Arnbjörnsson, einnig setið sem forseti ASÍ. Lykilþáttur í breyttum viðhorfum var aukning atvinnuleysis upp úr 1988, sem menn höfðu ekki upplifað síðan síldin hvarf 1969. Erfitt efnahagsumhverfi, samhliða því að mörg iðnfyrirtæki höfðu lagt upp laupana í kjölfar inngöngunnar í EFTA varð þess valdandi og ekki bætti úr skák aukning á atvinnuleysi við gjaldþrot Álafoss, Sambands Íslenskra Sam- vinnufélaga og fleiri fyrirtækja upp úr 1991. Atvinnuleysi varð meira en menn höfðu áður séð og nálgaðist það sem var í kreppunni á millistríðsárunum. Sex ára samdráttar tímabil varði frá 1988 til 1994. Vissulega var ávallt áhersla á hækkun lægstu launa innan verkalýðshreyfingarinnar, en þau sjónarmið urðu meira áberandi að gæta þurfti að samkeppnisstöðu Íslands varðandi launa og framleiðslukostnað til að tryggja atvinnu.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.