Þjóðmál - 01.12.2018, Side 41

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 41
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 39 Breytingar á starfi stéttarfélaga Þessar breytingar urðu til þess að verslunar- mönnum og iðnaðarmönnum fjölgaði en verkafólki fækkaði hlutfallslega með til- heyrandi breytingu á valdahlutföllum innan ASÍ. Frá 1988 til 2018 hafa verslunarmenn og iðnaðarmenn átt forseta ASÍ og fókus færðist meira á markaðslaun en lægstu taxta. Kauptaxtakerfið gaf víða eftir á almennum vinnumarkaði, en lifir þó einkum þar sem um er að ræða einn eða fáa vinnuveitendur og stóra samskonar hópa launþega. Hér á landi sjáum við kauptaxtakerfið ganga upp hjá kennurum, hjúkrunarfræðingum og flugmönnum svo tekin séu dæmi, þar sem starfsumhverfi og menntunarkröfur eru sambærilegar innan greina. Á almennum vinnumarkaði og smærri fyrirtækum er erfitt að útbúa launatöflur sem hentar öllum. Til dæmis eru félagsmenn VR um 29.000 og vinna hjá um 3.000 vinnuveitendum, þar sem störf eins og bókari, gjaldkeri eða sölumaður geta verið verulega frábrugðin frá einu fyrirtæki til annars. Við slíkar aðstæður höfðu erlendis þróast svokallaðir lágmarkslauna- samningar sem voru þá teknir upp hér. Í slíkum samningum eru tilgreind lágmarkslaun en að öðru leyti semja launamenn beint við sína vinnuveitendur í launaviðtölum. Hlutverk stét- tarfélaga þessa fólks breytist frá því sem áður var og við bætist ný vídd við að efla fólk með þjálfun, upplýsingum og hvatningu. Þessar breytingar fela í sér að viðmið launagreiðslna færist frá endurgjaldi fyrir unninn vinnutíma til þess að greiða fyrir árangur eins og t.d. lau- nakerfi sjómanna gerir. Með auknum opnunartíma versluna og vexti í veitinga- og ferðamannaiðnaði fjölgaði veru- lega störfum utan hefðbundins dagvinnu- tíma. Þessi störf bættust í hóp starfa í atvinnugreinum með vinnu á kvöldin og um helgar til viðbótar við sjávarútveg, flutninga- þjónustu, stóriðju, löggæslu, slökkvilið, heilbrigðiskerfi, sundlaugar, íþróttamann- virki, líkamsræktarstöðvar, leikhús, fjölmiðla, kvöldskóla o.s.frv. Það má segja að kjarasamningar hafi verið sniðnir utan um þarfir kjarnafjölskyldunnar um að vinnu skuli lokið fyrir kvöldmat, en þjónustusamfélagið sem við búum í kallar stöðugt á fleiri störf utan hefðbundins dagvinnutíma. Sprenging varð í vinnu skóla fólks með námi en jafnframt hefur verið hröð breyting á fjölskyldumynstri. Í dag eru einungis 17% heimila á Íslandi með svokallaða kjarnafjölskyldu þar sem eru tveir fullorðnir einstaklingar í sambúð með börn. Því hefur verið nægt framboð af fólki með frjálsari tíma sem vildi vinna á kvöldin og um helgar þegar álag var greitt á laun og margvís legt fyrirkomulag verktöku er í boði. Neikvæður fylgifiskar alþjóðavæðingarinnar eru meira atvinnuóöryggi og aukinn hraði í atvinnulífinu. Rætt er um að sjúkdóms- faraldrar þessarar aldar verði félagslegir og sálrænir sjúkdómar sem séu afsprengi þessa óöryggis og hraða. Því breyttust verkefni stéttarfélaga og þættir eins og virðing, bæði á vinnustað og fyrir einkalífi, urðu meira áberandi. Til að bregðast við óvissri stöðu skylduaðildar juku stéttarfélög þjónustu sína og ýmis hlunnindi til að tryggja áframhaldandi almenna aðild að stéttar- félögum s.s. með fjölgun orlofshúsa og að niðurgreiða orlofskosti.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.