Þjóðmál - 01.12.2018, Qupperneq 41
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 39
Breytingar á starfi stéttarfélaga
Þessar breytingar urðu til þess að verslunar-
mönnum og iðnaðarmönnum fjölgaði en
verkafólki fækkaði hlutfallslega með til-
heyrandi breytingu á valdahlutföllum innan
ASÍ. Frá 1988 til 2018 hafa verslunarmenn og
iðnaðarmenn átt forseta ASÍ og fókus færðist
meira á markaðslaun en lægstu taxta.
Kauptaxtakerfið gaf víða eftir á almennum
vinnumarkaði, en lifir þó einkum þar sem
um er að ræða einn eða fáa vinnuveitendur
og stóra samskonar hópa launþega. Hér á
landi sjáum við kauptaxtakerfið ganga upp
hjá kennurum, hjúkrunarfræðingum og
flugmönnum svo tekin séu dæmi, þar sem
starfsumhverfi og menntunarkröfur eru
sambærilegar innan greina. Á almennum
vinnumarkaði og smærri fyrirtækum er erfitt
að útbúa launatöflur sem hentar öllum. Til
dæmis eru félagsmenn VR um 29.000 og
vinna hjá um 3.000 vinnuveitendum, þar sem
störf eins og bókari, gjaldkeri eða sölumaður
geta verið verulega frábrugðin frá einu
fyrirtæki til annars. Við slíkar aðstæður höfðu
erlendis þróast svokallaðir lágmarkslauna-
samningar sem voru þá teknir upp hér. Í slíkum
samningum eru tilgreind lágmarkslaun en
að öðru leyti semja launamenn beint við sína
vinnuveitendur í launaviðtölum. Hlutverk stét-
tarfélaga þessa fólks breytist frá því sem áður
var og við bætist ný vídd við að efla fólk með
þjálfun, upplýsingum og hvatningu. Þessar
breytingar fela í sér að viðmið launagreiðslna
færist frá endurgjaldi fyrir unninn vinnutíma
til þess að greiða fyrir árangur eins og t.d. lau-
nakerfi sjómanna gerir.
Með auknum opnunartíma versluna og vexti í
veitinga- og ferðamannaiðnaði fjölgaði veru-
lega störfum utan hefðbundins dagvinnu-
tíma. Þessi störf bættust í hóp starfa í
atvinnugreinum með vinnu á kvöldin og um
helgar til viðbótar við sjávarútveg, flutninga-
þjónustu, stóriðju, löggæslu, slökkvilið,
heilbrigðiskerfi, sundlaugar, íþróttamann-
virki, líkamsræktarstöðvar, leikhús, fjölmiðla,
kvöldskóla o.s.frv.
Það má segja að kjarasamningar hafi verið
sniðnir utan um þarfir kjarnafjölskyldunnar
um að vinnu skuli lokið fyrir kvöldmat, en
þjónustusamfélagið sem við búum í kallar
stöðugt á fleiri störf utan hefðbundins
dagvinnutíma. Sprenging varð í vinnu
skóla fólks með námi en jafnframt hefur
verið hröð breyting á fjölskyldumynstri. Í
dag eru einungis 17% heimila á Íslandi með
svokallaða kjarnafjölskyldu þar sem eru tveir
fullorðnir einstaklingar í sambúð með börn.
Því hefur verið nægt framboð af fólki með
frjálsari tíma sem vildi vinna á kvöldin og
um helgar þegar álag var greitt á laun og
margvís legt fyrirkomulag verktöku er í boði.
Neikvæður fylgifiskar alþjóðavæðingarinnar
eru meira atvinnuóöryggi og aukinn hraði
í atvinnulífinu. Rætt er um að sjúkdóms-
faraldrar þessarar aldar verði félagslegir og
sálrænir sjúkdómar sem séu afsprengi þessa
óöryggis og hraða. Því breyttust verkefni
stéttarfélaga og þættir eins og virðing, bæði
á vinnustað og fyrir einkalífi, urðu meira
áberandi.
Til að bregðast við óvissri stöðu skylduaðildar juku stéttarfélög þjónustu sína
og ýmis hlunnindi til að tryggja áframhaldandi almenna aðild að stéttar-
félögum s.s. með fjölgun orlofshúsa og að niðurgreiða orlofskosti.