Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 42

Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 42
40 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Verkalýðshreyfingin stóð einnig frammi fyrir því upp úr 1990 að Alþjóðavinnumálastofnunin gerði athugasemd við framkvæmd forgangs- ákvæði kjarasamninga, eða svokallaðri skyldu aðild að stéttarfélögum. Síðan þá hefur fallið dómur hjá Mannréttinda- dómstólnum um svipað fyrirkomulag hjá dönsku kaupfélögunum sem leggur bann við slíku fyrirkomulagi. Til að bregðast við óvissri stöðu skylduaðildar juku stéttarfélög þjónustu sína og ýmis hlunnindi til að tryggja áframhaldandi almenna aðild að stéttar- félögum s.s. með fjölgun orlofshúsa og að niðurgreiða orlofskosti. Það leiddi einnig til þess að það þótti ekki lengur tillhlíðilegt að forustumenn væru áberandi í stjórnmálavafstri þar sem pólitískar skoðanir forustumanna færu ekki endilega saman við skoðanir allra félagsmanna, ólíkt því sem áður var. Áberandi flokkapólitík hvarf því úr verkalýðshreyfingunni þegar aldarmótin nálguðust. Um allan hin vestræna heim hefur stéttarfélagþátttaka farið minnkandi og er komin niður í 15-30% af þeim sem eru á almennum vinnumarkaði. Þar er verkalýðshreyfingin að jafnaði tengd stjórnmálaflokkum. Nefndar eru nokkrar ástæður fyrir þessari þróun. Til dæmis að verkalýðshreyfingin hafi þegar unnið sína stóru sigra og málefni skorti sem breið samstaða er um. Alþjóðavæðingin valdi því að stéttarbaráttutæki verkalýðs- hreyfingarinnar bíti ekki eins og áður sökum þess að vinna/framleiðsla flyst til annarra landa ef laun hækka meira en í öðrum löndum. Hér er stéttarfélagsþátttaka enn um 80%, stéttarfélagþátttaka á Norðurlöndunum hefur að jafnaði verið há en fer minnkandi og fylgir þróuninni í öðrum V-Evrópulöndum. Víða hafa einnig komið fram ný lággjalda- stéttarfélög sem standa utan heildarsamtaka og eru ótengd stjórnmálaflokkum sem bjóða takmarkaðri þjónustu gegn verulega lægra félagsgjaldi. Í dag er eitt stærsta stéttarfélag Danmerkur, Det faglige hus, slíkt félag. Við Íslendingar virðumst eiga heimsmetið í stéttarfélagsþátttöku, að minnsta kosti á almennum vinnumarkaði. Nú skal sækja fram Það er ljóst að orðið hafa tímamót hjá stéttar félögum á almennum vinnumarkaði og viðhorfum til kjarasamninga. Nýir forystu menn virðast horfa meira til viðhorfa sem voru ríkjandi fyrir gerð þjóðarsáttar- samninganna 1990 og eru um leið pólitískari. Stór hluti af kröfum snúa að stjórnvöldum en ekki atvinnurekendum. Krafist er myndar- legrar hækkunar skattleysismarka, aukins stuðnings stjórnvalda í húsnæðismálum, afnámi verðtryggingar og lækkun vaxta. Hótað er að beita verkfallsvopni ef Alþingi fari ekki að kröfum um breytingu á fjármál- amakaði. Gagnvart atvinnurekendum er krafist verulegrar hækkun lágmarkslauna auk almennrar hækkunar. Spurning er hvað veldur þessum viðhorfs- breytingum, því allt sem talið er hér að ofan sem forsenda þeirra sjónarmiða sem ríkt hafa í kjölfar þjóðarsáttarsamninga er í fullu gildi. Það má greina nokkra þætti sem hafa breyst og lesa má úr því sem kemur frá verkalýðshreyfingunni. Það er ljóst að orðið hafa tímamót hjá stéttar félögum á almennum vinnumarkaði og viðhorfum til kjarasamninga. Nýir forystu menn virðast horfa meira til viðhorfa sem voru ríkjandi fyrir gerð þjóðarsáttar samninganna 1990 og eru um leið pólitískari
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.