Þjóðmál - 01.12.2018, Page 43

Þjóðmál - 01.12.2018, Page 43
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 41 Í fyrsta lagi er ljóst að þúsundir heimila voru boðin upp eftir bankahrunið og enn fleiri lentu í fjárhagslegum þrengingum, sem hefur valdið reiði og vantrausti á stofnunum samfélagsins. Þá hafa ákvarðanir kjararáðs varðandi laun æðstu embættismanna ekki verið til að sefa reiði almennings. Loks hafa margir að búa við ótryggt leiguhúsnæði. Frá 2008 hefur þeim sem búa í leiguhúsnæði fjölgað út 22% í 30%. Kröfugerðir stéttarfélaga sem hafa komið fram í haust um hækkun lágmarkslauna taka viðmið af hvað þurfi til að lifa í nútíma samfélagi. Út frá viðmiði um samkeppnis- hæfni starfa eða verðlags er mjög líklegt að kröfurnar séu það háar að erfiðlega muni ganga að klára kjarasamninga. Út frá ummælum forustumanna stærstu stéttar félaga og ASÍ er einnig ljóst að sótt verður fram af mikilli festu og að menn hafa þegar brennt brýrnar að baki sér. Verulegar líkur eru að á endanum verði boðað til verkfalla. Ef verkföll verða langvinn þá munu margir félagsmenn stéttarfélaga sem ekki samsama sig við helstu kröfurnar, þeir sem eru á hærri launum og búa í eigin húsnæði spyrja sig hvort herkostnaðurinn sé of dýru verði keyptur. Verkföll eru að jafnaði mjög erfið félagslega. Í ljósi þess að það sem á sér stað úti í heimi virðist oft reka á fjörur okkar fyrr eða seinna, þá má fastlega búast við að þróunin hér á landi varðandi stéttar félagsþátttöku verði í átt að því sem er annarstaðar í hinum vestræna heimi. Það er spurning hvort risarnir í verkalýðs- hreyfingunni séu að kasta fjöreggi hreyfingar innar full ógætilega á milli sín og að ef eitthvað fer úrskeiðis muni það skaða hreyfinguna alvarlega til framtíðar. Höfundur er formaður Félags lykilmanna og fyrrverandi formaður VR.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.