Þjóðmál - 01.12.2018, Page 45

Þjóðmál - 01.12.2018, Page 45
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 43 Tveimur dögum seinna, þann 4. janúar 1941, skrifaði ungur hagfræðingur, Ólafur Björns- son, grein í Morgunblaðið er bar yfirskriftina Kaupgjaldssamningarnir og dýrtíðin. Þar segir Ólafur: „Það þarf því ekki spámann til þess að sjá fyrir afleiðingar þeirrar stefnu í kaupgjalds- málum sem nú virðast ætla að verða ofan á. Hinn takmarkaði innflutningur, jafnframt síaukinni kaupgetu og hömlum á álagningu vara, hlýtur óhjákvæmilega að draga í kjölfar sitt nokkuð sem ekki verður umflúið þó kaupgjald fari hækkandi í hlutfalli við dýrtíðina og meira til, og verður öllu tilfinnanlegra en dýrtíðin, nefnilega stórfeldan vöruskort í Iandinu. Það ætti engum að koma á óvart, þó svo færi að óbreyttu ástandi, er líða tæki á árið, að sjá mætti biðraðir fyrir utan fleiri búðardyr...“2 Allt gekk þetta eftir eins og Ólafur hafði spáð. Verkalýðsfélögin fengu umbeðnar launa- hækkanir og meira í viðbót í ýmsum öðrum vinnustöðvunum sem fylgdu í kjölfarið. Þessar hækkanir komu hins vegar strax fram með hækkun verðlags og auknum vöruskorti enda voru allir flutningar til landsins takmarkaðir vegna stríðsins. Þetta var þó aðeins upphafið að mjög löngum leik sem gjarnan er nú vísað til sem höfrungahlaups, það er hvernig mismunandi stéttir eða starfs- greinar berja fram „launaleiðréttingar“ til skiptis án tillits til efnahagslegra aðstæðna. Þannig markar 2. janúar 1941 söguleg tímamót í Íslandssögunni. Eftir þennan dag fá nafnlaunahækkanir sitt eigið líf – ef svo má segja – og losna frá eðlilegum viðmiðum um framleiðni og vöxt raunlauna. Svo má segja að hið íslenska lýðveldi hafi fengið höfrungahlaupið í vöggugjöf. Þessi þjóðar- íþrótt hefur síðan verið ein helsta rótin að verðbólgu og gengisóstöðugleika sem mjög hefur mótað íslensk efnahagsmál. Nú, 77 árum síðar, eru Íslendingar enn við sama heygarðshornið. Hafta­höfrungahlaupið Á Íslandi var lengi vel nokkuð þverpólitísk samstaða um að halda genginu stöðugu – jafnvel þó það þó það væri með aðstoð hafta. Við upphaf Kreppunnar miklu árið 1930 hafði eini einkabanki landsins – Íslandsbanki – orðið gjaldþrota. Þessir atburðir voru á þeim tíma kallaðir „bankahrun“ og í kjölfar þeirra tók fjármagn að streyma úr landi á sama tíma og fiskverð lækkaði verulega á alþjóðamörkuðum. Landsbankinn var þá seðlabanki landsins og hafði hvorki gjaldeyris- forða né lánstraust erlendis til þess að geta stutt krónuna á gjaldeyrismarkaði í kjölfar mikils útflæðis á greiðslujöfnuði. Landið var með fastgengi við breska pundið og það kom ekki til greina að leyfa krónunni að falla. Haustið 1931 bar Landsbankinn upp þá beiðni við Alþingi að taka upp gjaldeyrishöft, sem var veitt. Hins vegar varð haftasetningin aðeins skammgóður vermir fyrir Ísland. Hin raunverulega undirstaða kaupmáttar er aukin framleiðni – það hvað hver vinnustund skilar miklu verðmæti. Að baki framleiðninni eru síðan tæknibreytingar. Þegar litið er til lengri tíma er hægt að búast við 1-3% fram- leiðniaukningu á ári og það er sú prósenta sem kaupmáttur getur vaxið um að meðal- tali. Hækkun nafnlauna umfram framleiðni er í raun ófjármögnuð launahækkun er veldur í fyrsta lagi verðbólgu og í öðru lagi hækkun á raungengi krónunnar. Hærra raungengi rýrir samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og dregur þannig úr útflutningi ásamt því að hvetja til innflutnings. Afleiðingin er viðskipta- halli. Viðskiptahallann verður að fjármagna með erlendu fjármagni – en það getur aðeins gerst í takmarkaðan tíma. Fyrr eða síðar mun efnahagslífið komast í greiðsluþrot nema þá aðeins að innflutningur sé haldið í skefjum með höftum eða tollum, þá eða raungengið sé leiðrétt með gengisfellingu.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.