Þjóðmál - 01.12.2018, Page 46

Þjóðmál - 01.12.2018, Page 46
44 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Árin eftir stríðslok voru tímabil gríðarlegar vígreifrar stéttabaráttu sem skilaði miklum nafnlaunahækkunum. Það er þá sem víxl- hækkun launa, verðlags og herðingu hafta hófst af fullum krafti. En höftin voru sett til þess að koma í veg fyrir að aukinn kaup- máttur brytist út sem innflutningur er kæmi fram með viðskiptahalla. Þetta var því eins konar hafta-höfrungahlaup. Þannig varð hin harða kjarabarátta til þess að innflutnings- höftin reyrðust þéttar og þéttar að íslensku efnahagslífi með hverju árinu sem leið. Ísland varð ein ríkasta þjóð Evrópu ef litið var til launa stigs, en vegna gjaldeyrisskorts gat þessi ríka þjóð þó ekki flutt inn ávexti nema aðeins fyrir jólin og fólk fékk úthlutað skömmtunarseðla til þess að kaupa nauð- synjavörur. Þessum tíma er raunar mjög vel lýst í bók Jakobs F. Ásgeirssonar, Þjóð í hafti, sem gefin var út árið 2005. Tímasprengja viðreisnarstjórnarinnar Með valdatöku Viðreisnarstjórnarinnar árið 1960 var gengið fellt samhliða því sem tollar voru felldir niður til þess að ná eðlilegu jafnvægi í utanríkisviðskiptum. Viðreisnar- stjórninni var einnig mikið í mun að ná sátt á vinnumarkaði og stöðva höfrungahlaupið – og varð nokkuð ágengt í því efni. Í heildar- kjarasamningum vorið 1964 var vinnuvikan til að mynda stytt, orlofið lengt og greiðslur fyrir eftirvinnu hækkaðar. Síðar komu aðrar félagslegar umbætur er núverandi lífeyris- kerfi var komið á fót og gert var átak í húsnæðismálum sem Breiðholtið ber vitni um. En samningarnir 1964 gerðu einnig ráð fyrir verðtryggingu launa. Með þeirri aðgerð ætlaði stjórnin sér að koma böndum á verðbólgu þar sem verkalýðsfélögin þyrftu þá ekki að heimta miklar nafnlaunahækkanir af ótta við verðbólgu heldur yrði kaupmáttur tryggður. Með þetta að veganesti var ákveðið að hækka ekki nafnlaun þetta ár. Þessi tilraun til þjóðarsáttar átti þó eftir að draga langan slóða á eftir sér þar sem verðtrygging launa getur ekki farið saman með sveigjanlegu nafngengi. Tilgangur gengislækkana er að lækka raungengi og raunlaun. Ef laun eru verðtryggð munu þau hækka sjálfkrafa um leið og gengið er fellt og alda víxlverkana kemst af stað þar sem verðlag hækkar og gengið lækkar til skiptis. Þetta átti brátt eftir að sýna sig í verki. Eftir fall Viðreisnarstjórnarinnar árið 1971 hófst höfrungahlaupið á nýjan leik með víxl hækkun launa og verðlags og gengisfellinga. Þjóðar- sáttin frá Viðreisnarárunum varð því að sprengi efni um leið og verðbólgan fór af stað á áttunda áratugnum. Verðbólgan – hinn félagslegi gerðardómur Árið 1980 flutti Jónas Haralz, þá bankastjóri Landsbankans, erindi hjá Félagi viðskipta- fræðinga og hagfræðinga um ástæður þess af hverju Ísland væri svona mikið verðbólgu- land. Hann taldi verðbólguna einkum eiga sér tvær rætur; annars vegar skýrast af sveiflum í sjávarútvegi sem reglulega kölluðu á gengisfellingar og hins vegar af deilum um skiptingu þjóðarkökunnar þar sem verð bólgan væri „eins konar gerðardómur í félags legri togstreitu“. Jónas vísaði þannig til þess að markmið kjarasamninga hefði löngum verið það að viðhalda launabili á milli stétta. Og þar sem stéttirnar væru yfirleitt ekki sammála um hvað launabilið ætti að vera yrðu samningarnir að ek. höfrungahlaupi þar sem stéttirnar skiptust á um að berja fram „launaleiðréttingar“. Afleiðing þessarar togstreitu birtist síðan með miklum nafnlaunahækkunum, langt umfram greiðslugetu atvinnulífsins sem hagkerfið hlaut að létta sér með verðbólgu

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.