Þjóðmál - 01.12.2018, Blaðsíða 47

Þjóðmál - 01.12.2018, Blaðsíða 47
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 45 og lækkun raunlauna – oft eftir mikla lækkun gengisins. (Fyrirlesturinn birtist síðar sem kafli með titlinum Í ljósi reynslunnar í greina- safni Jónasar „Velferðaríki á villigötum“.) Á þeim tíma sem Jónas flutti fyrirlesturinn, árið 1980, voru höfrungahlaupin komin í slíkar ófærur að verðbólga hljóp á 50-80% með víxlverkun launa, verðlags og gengis. Um síðir var brugðist við þessu með þjóðar- sátt árið 1990. Grundvöllur þeirrar sáttar var að allar starfsséttir skyldu fá sömu kaup- hækkanir og að verðbólguspár yrðu lagðar til grundvallar kaupmáttarmarkmiðum. Til þess að árétta þetta markmið um launa jöfnuð voru kjarasamningar háskólamenntaðra ríkis starfsmanna (sem gerði ráð fyrir meiri kauphækkunum og ýmsu öðru) afnumdir með lögum við dynjandi lófatak annarra stéttar félaga. Með þessari lagasetningu voru launahlutföllin fest niður á Íslandi og höfrungahlaupið hætti. Ári fyrr, eða 1989, höfðu íslensk stjórnvöld tekið upp fastgengisstefnu og sú stefna ásamt þjóðarsáttinni tók verðbólgu niður úr 21% árið 1988 í 3,7% árið 1992. Ef Jónas Haralz hefur rétt fyrr sér er það stéttaspenna sem er hin upprunalega orsök höfrungahlaupsins og þeirrar miklu verð- bólgu sem hefur verið viðvarandi frá stríðs- lokum – eða sú staðreynd að Íslendingar séu einfaldlega ekki sammála um hvert launabilið eigi að vera á milli hinna ýmsu þjóðfélagshópa. Svo sem á milli verkafólks og háskólamenntaðra starfsmanna, á milli flugþjóna eða þjóna á landi niðri, á milli kennara og verslunarfólks, á milli alþingis- manna og öryrkja, á milli biskups Íslands og venjulegs launafólks. Um þetta ríkir ekki sátt hérlendis – öfugt við það sem að megin stofni gerist hjá öðrum norrænum þjóðum. Sömu laun fyrir alla Íslendingar hafa alltaf haft mjög sterkar skoðanir á jöfnuði og þá einkum að tekjum sé jafnt skipt. Þannig gat ekki skapast friður á vinnumarkaði fyrr en þjóðarsáttin hafði neglt niður nokkuð jöfn laun fyrir alla og síðan sömu hækkanir í framhaldi. Hins vegar hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan. Íslenskt atvinnulíf er nú gerólíkt því sem þekktist árið 1990. Staðreyndin er einfaldlega sú að á síðustu áratugum hafa laun háskólamenntaðs fólks hækkað langt umfram laun fólks í verkastétt á Vesturlöndum, bæði vegna alþjóðavæðingar og tæknibreytinga. Það hefur síðan leitt til sívaxandi óánægju meðal almennings og unnið upp frjóan jarðveg fyrir populista. Ísland er hér vitaskuld ekki undanskilið enda hluti af hinum evrópska vinnumarkaði. Íslenska launamódelið er hins vegar að verða fyrir sívaxandi þrýstingi að utan – frá hinum evrópska vinnumarkaði. Há laun ófaglærðra draga nú að sér vinnuafl í stríðum straumum frá A-Evrópu en starfasköpunin hefur samt sem áður verið svo ör að þessi þróun hefur ekki skapað sömu þjóðfélagsspennu og víða annars staðar – hvað sem síðar gerist. Á sama tíma eru há laun erlendis að toga í menntað fólk hérlendis. Það sést m.a. af því að töluverður straumur er af ungu fólki úr landi þrátt fyrir mikinn efnahagslegan uppgang – hagarnir eru einfaldlega grænni ytra. Þá eru sérfræði- stéttir hérlendis í auknum mæli farnar að miða sig við starfssystkini sín erlendis sem hefur slegið mun harðari tón í kjarabaráttu þeirra. Gríðarlega sterkir kraftar vinna nú að því að teygja út launabilið – líkt og annars staðar á Vesturlöndum. Hækkun nafnlauna umfram framleiðni er í raun ófjármögnuð launahækkun er veldur í fyrsta lagi verðbólgu og í öðru lagi hækkun á raungengi krónunnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.