Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 48

Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 48
46 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Uppgangur ferðaþjónustu sem hefur skapað gríðarlega eftirspurn eftir ófaglærðu vinnu afli hefur að vísu stuðlað að auknum launajöfnuði en án þess þó að breyta heildar- myndinni. Þannig eru nú komnir miklir brestir í þau launahlutföll sem voru innbyggð í þjóðarsáttina og í því framhaldi mátti búast við auknum launametingi og stéttaátökum á vinnumarkaði. Það er með góðum rökum hægt að halda því fram að jafnlaunastefna þjóðarsáttarinnar vinni gegn hagvexti og framleiðni í landinu þar sem fjárhagslegur ábati af menntun er of lítill. Þar fyrir utan er það eitt helsta markmið skatta- og bótakerfisins að jafna ráðstöfunar- tekjurnar enn frekar. Raunar má segja að hin íslenska millistéttin sé föst í launagildru og jafnvel þó fólk reyni að auka tekjur sínar með því að vinna meira veldur samspil bóta og skatta því að raunverulegar ráðstöfunartekjur standa í stað. Það eru að vísu takmörk fyrir því hvað er hægt að festa niður laun í frjálsu hagkerfi með miðstýrðum kjarasamningum – mörg einkafyrirtæki fara framhjá þessu með yfirborgunum, aukagreiðslum, bónusum og svo framvegis, sem eru eins og eitur í beinum almennra verkalýðsfélaga, en það er önnur saga. Að endurstilla klukkuna Í frægri ritgerð frá árinu 1953 er ber heitið „The Case for Flexible Exchange Rate“ líkti Milton Friedman gengisbreytingum við árstíðabundna breytingu klukkunnar, er tíðkast í mörgum löndum, þar sem tímanum er flýtt eða seinkað um klukkutíma til þess að samhæfa vinnutíma fólks að gangi sólarinnar. Þannig er hægt að líta á sveigjanlegt gengi sem samhæfingartæki til þess að bregðast við niðursveiflu og efnahagsáföllum með því að lækka laun allra í einu vetfangi án þess að breyta launahlutföllum. Staðreyndin er nefnilega sú að flestar nafnstærðir sem tengjast heimilum landsins eiga erfitt með að lækka nema með tölu- verðum harmkvælum. Það er bæði tafsamt verk og erfitt fyrir einstök fyrirtæki, og jafnvel atvinnu greinar, að semja um beinar launalækkanir nema þá í algerri neyð. Þess vegna velja fyrirtæki gjarnan þá leið að spara launakostnað með því að segja upp fólki og draga úr framleiðslu í stað þess að lækka laun. Þannig eru þau örugg um að halda besta fólkinu ánægðu í starfi í stað þess að hætta á það að starfsmenn bregðist við lægri launum með því að slá slöku við eða leggja inn umsóknir á öðrum stöðum. Það er því ljóst að höfrungahlaup og lotu- græðgi í launahækkunum hlýtur að kalla á sjálfstæða mynt til þess að geta endurstillt launin í landinu reglulega. Með góðum rökum er þó hægt að halda fram að orsaka- samhengið sé öfugt. Nálgun Íslendinga í kjaraviðræðum helgist af því að gengið er einmitt sveigjanlegt og geti gefið eftir ef þörf krefur. Þegar litið er til sögu Íslands er auðvelt að tengja hið frábæra sveigjanlega gengi við agaleysi og óstöðugleika, sem hefur svo gegnsýrt þjóðarbúskapinn. Einnig væri hægt að rita langt mál um það hvernig verðbólga veldur bæði sóun og færir verðmæti til í efnahagslífinu. Veikur og óstöðugur gjald- miðill veldur einnig háu vaxtastig og svo mætti áfram telja. Niðurstaðan er samt sú að krónan og vinnumarkaðurinn passa saman líkt og flís við rass. Hin raunverulega undirstaða kaupmáttar er aukin framleiðni – það hvað hver vinnustund skilar miklu verðmæti. Þegar litið er til lengri tíma er hægt að búast við 1-3% framleiðniaukningu á ári og það er sú prósenta sem kaupmáttur getur vaxið um að meðaltali.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.